Heimilisritið - 01.06.1952, Síða 25

Heimilisritið - 01.06.1952, Síða 25
leyi'i til að fara í land sjöunda hvert ár. Og Hollendingurinn hefur ekki brotið í bág við það. En nú biður hann Ahasverus uni náð og leyfi til að sjá föðurland sitt og ástvini. Dómarinn segir, að geti hann fundið konu. sem \ ilji deila með honum örlögum sinum, skuli hann Iaus undan fordæmingunni eftir næstu sjö ár. Að lokum tekur Daland tal við hinn ókunna skipstjóra. Honum er einnig boðið að dvelja á heimili Dalands. Daland á dóttur, Sentu að nafni, fallega og alvörugefna stúlku. Gömul frænka hennar, María, hefur oft sungið fyrir hana um hinn ó- gæfusama fljúgandi Holleriding. Nú kemur faðir hennar heim með þennan dularfulla gest frá hafinu. Hollendingurinn, sem Jjrátt fyrir sitt langa líf á sjón- um, er ungur og gerfilegur mað- ur á að líta, verður ástfanginn af Sentu. En Senta er trúlofuð hafnsögupiltinum Erik. Senta segir gestinum frá „Hollendingn- um fljúgandi“ og spyr, hvort hann hafi nokkurntíma heyrt hans getið'. Og nú trúir gestur- inn henni fyrir, að hann sé „Hol- lendingurinn fljúgandi“ — og biður hennar. Senta finnur, að Jietta er stórt hlutverk. Hún getur frelsað von Straten frá fordæmingunni með því að fórna sjálfri sér. Og hún tekur ákvörðun. Faðirinn, sem ekki veit, hvað dóttirin færist í fang, blessar þau. Þau eru gift, og svo yfirgefur Senta heimili sitt og siglir út á hafið með hin- um fordæmda, til að lifa með honum í sjö þrengingaár og síð- an í friði og hamingju á föður- landi hans, Hollandi. Þannig var upphaflegi texti Wagners. En í óperunni lætur hann skútu Hollendingsins far- ast og elskendurna sameinast í dauðanum. Músíkin í „Hollendingnum fljúgandi" er eitt af því bezta eftir Wagner og nýtur mikilla vinsælda. ÓLÍKT HONUM Mario Lanza var að dansa við unga fegurðardís og hún sagði: „Ó, þegar ég sá síðustu myndina af yður, kyssti ég hana af því hvað hún var lík yður.“ „Og kyssti myndin yður aftur?“ „Nei, því miður". „Jæja,“ sagði Lanza, „þá var hún ekki lík mér.“ JÚNÍ, 1952 23

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.