Heimilisritið - 01.06.1952, Síða 28

Heimilisritið - 01.06.1952, Síða 28
gustur, sem nísti alla í merg og bein. Augun í frú Mayton urðu starandi eins og gljáandi glerkúlur. Monty Smith opnaði munninn og fékk ekki lokað honum aftur. Calthrop glað- vaknaði, aldrei þessu vant. Ung- frú Wicks fékk jafnvel áhuga á málinu, þótt hún héldi að sjálfsögðu áfram að prjóna. Því myndi hún halda áfram fram í andlátið. „Dauður!“ stundi Calthrop. „Já — dauður!“ endurtók Penbury. „Hann liggur á gólfinu í herberginu sínu og er síður en svo félegur ásýndum.“ Monty spratt á fætur og sett- ist aftur. „Þér haldið vænti ég ekki, að ... að hann hafi ...“ stamaði hann. „Jú, það er einmitt það, sem ég held.“ Oft hafði verið þegjandalegt í stofu frú Mayton, en aldrei hafði ríkt þar önnur eins þögn sem þessa stundina. Ungfrú Wicks hóf máls fyrst allra. „Er þá ekki réttast að senda eftir lögreglunni?“ mælti hún. „Henni er kunnugt um þetta,“ svaraði Penbury. „Eg hringdi á lögreglustöðina rétt áður en ég kom hingað inn í stofuna.“ „Þetta er hræðilegt,“ stamaði Calthrop. „Hvað ætli það verði langt þangað til þeir koma?“ spurði Monty. „Ég hugsa að lögreglan komi hingað eftir fimm mínútur,“ svaraði Penbury. Raddblærinn var ekki lengur napur, hann tal- aði nú um málið í algerum við- skiptatón. „Það væri ráð, að við notuðum tímann þangað til, eins vel og við getum. Við verðum að sjálfsögðu öll þrautyfirheyrð. Væri ekki fyrirtak að við gæt- um gert okkur grein fyrir mála- vöxtum, áður en lögreglan kem- ur?“ CALTHROP hnykkti til höfð- inu. „Enginn okkar á hlut að dauða Wains,“ sagði hann hörku- lega. „Þá fullyrðingu mun lögregl- an ekki telja góða og gilda að órannsökuðu máli,“ svaraði Pen- bury. „Ég álít þess vegna, að við ættum að athuga það strax lítillega, hverjar horfur séu á því að við getum sannað um hvert eitt okkar, hvar við vor- um stödd er atburðurinn varð. Ég er raunar ekki læknir, en að því er ég gat séð á líkinu, er ekki liðin klukkustund frá því maðurinn dó, og það getur í hæsta lagi verið liðin klukku- stund síðan morðið var framið.“ Hann leit á klukkuna. „Klukk- an er nú 21.10, og hún var 19.40 26 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.