Heimilisritið - 01.06.1952, Blaðsíða 47
r~ ■>>
ÓBYGGÐIR. — Það cr villugjarnt um óvarðaða heiðavegi. Ef þokur og
snjóbyljir skella á, hafa margjr orðið úti á óbyggðum. Hættu þér ekki
í tvísýnu!
OFÁT. — Dreymi mann að hann hafi ctið yfir sig, táknar það of mikið
sjálfsálit. Sjá annan eta yfir sig boðar langa hamingju.
OFBELDI. — Drcyrni þig að einhver sýni þér ofbelcli, cða þú sjáir fólk
sýna ofbeldi, mun rnargt snúast þér í vil. Hús, heimili, föt, vinir,
hamingja — þetta að meira eða minni leyti mun falla þér í skaut.
ÓFRÍÐLEIKI. — Dreymj mann að hann sé ákaflega ófríður og honum
falli það þungt, er hann miklu eftirsóknarverðari en hann heldur sjálf-
ur, enda mun hann sannprófa það áður en varir.
ÓGNUN. — Dreymi þig að einhver ógni þér, skaltu vera vcl á varðbergi.
Eignir þínar eða annað, sem þér er annt um, eru í hættu, ef þú ert
ekki á varðbergi.
ÓGÆFA. — Ef þig dreymir að þú hafir orðið fyrir einhverri ógæfu, mun
einhver vinur þinn hljóta mikla upphefð. Kaupsýslumönnum er það
fyrir fjárhagslegum gróða.
ÓHLYÐNI. — Dreymi þig að þú óhlýðnist fyrirskipunum, einkum for-
eldra þinna eða yfirboðara, skaltu gera þér það Ijóst hvort þú metur
meira, ást eða auðæfi. Þú getur ekki öðlazt hvort tveggja.
ÓHÓF. — Ef þig dreymir óhóf boðar það fátækt, tjón og afbrýðiscmi.
Dreymi ógifta að þeir hafi allt af öllu í óhófi, munu þeir giftast seint,
en vel.
ÓHREININDI. — Ef þig dreymir að föt þín séu útötuð í óhreinindum,
er hætt við að mannorð þitt bíði hnekki vegna framferðis þíns. Sértu
að rcyna að ná af þér bletti eða óhreinindum er það fyrir góðu. Að
ganga í for er oft fyrir gróða, ef dreymandanum finnst hann ekki
óhreinkast til muna.
ÓPALL. — Því aðeins boðar draumur um ópal hamingju, að þú sért þegar
hcitbundin(n). — Ötrúlofuðum og ógiftum er ópall hinsvcgar óhcdla-
boði í draumi.
ÓPERA. — Dreymi þig að þú sért að hlusta og horfa á óperu með einhvem
sérstakri persónu, skaltu gæta þín, því viðkomandi er hvorki trú-
verðugur né trygglyndur í þinn garð.
ÓPIUM. — Að dreyma þetta eiturlyf, boðar dreymandanum tjón, erfiðleika
og jafnvel dauðdaga cinhvcrs hjartfólgins.
0RÐA. -— Upphefð er þeim vís, sem dreyma, að þeir fái orður, og þó
getur það verið tvíeggjað.
ORÐASENNA — Sjá Deila, ReiÖi.
ORGEL. — Að vera nálægt orgeli í draumi og hcyra leikið á það, boðar
hamingju, velmcgun og ákjósanlegt hjónaband. Sumir telja það boða
gleðj blandaða þjáningu, og enn aðrir álíta það spái háum aldri. Stund-
^-------------------------------------------------------------------------------
JÚNÍ, 1952
45.