Heimilisritið - 01.06.1952, Page 52
hvað það nú er.“
„Þessa leið kemst maður varla
til vítis, heldur aðeins til Earl
Court eða Baker Street. En mis-
skilningurinn er fyrirgefanleg-
ur.“
„Það er enginn misskilningur.
Við skulum fara niður, þá skal
ég sýna yður, hvað ég meina.“
Þeir fóru niður með renni-
tröppunni og töluðu saman í
bróðemi. Þarna var fjöldi ferða-
fólks, en enginn tók eftir þeim
félögum.
Þegar þeir komu á neðstu
hæð, þar sem lestirnar aka, dró
púkinn Louis inn í gang, sem
hann hafði aldrei áður séð. Upp
úr þessum neðanjarðargöngum
heyrðist undarlegur hávaði.
Hann sá skilti er á var letrað:
„Fylgið skökku ljósmerki!“ Eft-
ir nokkur skref komu þeir á
rennitröppu, sem Louis vinur
vor hafði aldrei áður séð. Hún
þaut af stað með ofsahraða nið-
ur í jörðina. Gangurinn var lýst-
ur með venjulegum lömpum, en
Louis sá, að fjærstu skuggamir
voru bláleitir og þar voru stjörn-
ur í stað lampa. Þó virtist enn
löng leið eftir.
LOUIS sá þarna aðra púka
með fanga sína, sumir hegðuðu
sér afar óvirðulega og það varð
að draga þá með valdi. Þetta
var sorgleg sjón, en þó gat Louis
ekki annað en dáðst að tröpp-
unni, sem þaut áfram með þessa
púka-lögregluþjóna og fanga
þeirra.
„Hvernig fóruð þið að, áður
en þessar tilfæringar voru
fundnar upp?“ spurði hann.
„Þá vorum við neyddir til að
hoppa eins og geithafrar frá
stjörnu til stjörnu," útskýrði
púkinn.
„Allt í lagi, en ættum við nú
ekki að fá okkur sopa?“
Þeir fóru í Rottugildruna og
læddust bak við barinn og tóku
heilflösku af „Kvets“ niður úr
hillu. Púkinn kærði sig ekki um
glas, og Louis sá sér til undrun-
ar hvernig koníakið fór að sjóða.
Púkinn virtist njóta þess, og
þegar innihaldið var drukkið,
tók hann að slokra í sig flösk-
una. Hún bráðnaði eins og
rjómaís. Þegar hann hafði lokið
öllu saman, brosti hann og tók
að blása flöskunni út úr sér aft-
ur, rétt eins og þegar maður
blæs frá sér reyk.
Louis fann fleiri flöskur af
„Kvets“, og Púkinn setti þær í
sig og bað um fleiri tegundir.
Á endanum varð hann þétt-
drukkinn, og Louis hvatti hann
óspart til drykkjunnar, hann
langaði nefnilega ekki til að
heimsækja rennitröppuna.
50
HEIMILISRITIÐ