Heimilisritið - 30.05.1953, Page 30

Heimilisritið - 30.05.1953, Page 30
þegar í stað ! En það get ég ekki fengiS mig til, Janet. Eg get ekki byrjaS á neinu slíku í kvöld, strax eftir aS hann hefur haldiS mér aSra eins veizlu. Eg get þaS ekki! Þar aS auki ke-mur annaS til greina — fjölskyldumál, sem ég get ekki sagt þér frá, að minnsta kosti ekki að svo stöddu. Sem sagt, ég get ekki farið frá London fyrr en eftir mánuð. Pétur verður að bíða.“ ..O, þú þarft heldur ekkert að flýta þér!“ anzaði ég biturlega. ,,Hann hefur nú þegar beðið í fjögur ár !“ En nú fór Cynthia að gráta. ,,Ö, Janet, vertu nú góð og reyndu að skilja mig. Þetta — þetta er nokkuð, sem ég fae ekki ráðið neitt við. Segðu Pétri, aS ég komi áður en mánuður líður — og að það hafi enga þýðingu fyrir hann að koma hingað og sækja mig. ÞaS myndi aðeins gera illt verra. En ekki skal líða lengri tími en einn rr.ánuSur. Því heiti ég.“ HÁLFUM mánuði síðar gaf að líta þumlungsháa stafi í fyrirsögn- um dagblaðanna á þessa leið: Stórfyrirtœk.i gjaldþrota. Selesen missir allar eigur sínar. Robert Selesen hafði tapað öllu, sem hann átti; Cynthia orðin jafn fá- tæk og Pétur, jafnvel fátækari. Vitanlega hafði það verið þess vegna, sem hún vildi ekki leggja af stað til hans. Hún vildi vera kyrr hjá föður sínum ! Eg hlaut að dást að Cynthiu — hvað sem ég reyndi að bæla aðdáunina nið- ur. Nú fór ég að skilja hina und- arlegu framkomu hennar eftir veizluna; og ég skammaðist mín fyrir aS hafa verið uppnæm viS hana út af því, sem hún sagði. ,,En hvað það er samt líkt henni, þessari elsku !“ sagði Pét- ur. Það var nýr og annarlegur glarnpi í augum hans, og ég gat mér til um það, hvað hann þýddi. Nú myndi hjónaband þeirra verða fullko.mlega jafnvægt. Ut- troðið peningaveski Selesens gat aldrei frarnar kastað neinum skugga á það, og Pétur myndi aldrei þurfa að iðrast þess að hafa numið Chynthiu á brott úr hóglífi auðsins. Ekkert lífsmark barst frá Cyn- thiu. En tíu dögum eftir gjald- þrot Selesens fluttu blöðin aðra fregn, sem var ekki síður nýnæmi og kom eins og reiðarslag yfir alla. ÞaS birtist mynd af Cynthiu m.eð orkídeur nældar í kápuna, þar sem hún var í þann veg aS aka burt frá Caxton Hall ásamt roskna manninum, sem ég hafði tekiS eftir í afmælisveizlunni hennar. Hún var gift — gift 28 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.