Heimilisritið - 30.05.1953, Page 32

Heimilisritið - 30.05.1953, Page 32
landi burt — í stuttu máli sagt, hann var kocninn vel á veg með að setja frænda sinn og frænku í gröfina. Að sex árum liðnum bað hann mig um að giftast sér. ,,Ég get ekki heitið þér neinu af þekn tilfinningum, sem ég bar til Cynthiu,“ sagði hann einlæg- lega. ,,En við skiljum hvort ann- að, Janet, og við höfum verið af- ar góðir kunningjar. Eg held, að við myndum geta komið okkur ágætlega saman.“ Við giftumst að vori. Þegar við gengum fram kirkjugólfið, rak ég augun í Cynthiu. Henni hafði ekki verið boðið, en þarna var hún samt. Hún hlaut að hafa sloppið inn í kirkjuna meðan á hjónavíglunni stóð, því þarna sat hún alein á yzta kirkjubekkn- um. Pétur náfölnaði. Hann þrýsti hönd mína og starði einbeittur fram fyrir sig meðan hann gekk framhjá yzta bekknum. Síðla sumars kom Cynthia til High Salfont til þess að kveðja. Það var rétt í stríðsbyrjun, og maðurinn hennar ætlaði að senda hana til Ameríku. Án þess að ræða það innbyrðis, höfðum við Pétur bæði reynt að forðast að verða á vegi hennar. Hann tók sér ferð til Worthing ,,{ verzlun- arerindum“, eins og hann komst að orði. Og ég fór til næsta kaup- túns og keypti mig inn á tvær bíósýningar í röð. Þegar við kom- um heim aftur, var Cynthia á bak og burt. NÚ VAR klukkan um sex, og ég beið eftir Pétri inni í dagstof- unni. Mér varð hugsað til undan- genginna sjö ára, til þeirrar bar- áttu, sem það hafði kostað að halda öllu í horfinu, meðan Pét- ur var í stríðinu og ég var ein heima með bæði börnin. Nú var hann kominn aftur, og orðinn húsamiðlari á ný. Frændi hans var dáinn og hafði arfleitt hann að fyrirtækinu. I styrjöldinni hafði Pétur öðl- azt öryggi og sjálfstraust. Nú var ég þrjátíu og eins árs, en Pétur þrjátíu. Við vorum ennþá nógu ung til þess að njóta lífsins, — aðeins ef Cynthia gæti séð okk- ur í friði. En auðsjáanlega gat hún það ekki. Ég hafði, þegar hér var komið sögu, skrifað Cynthiu og boðið henni að dveljast hjá okkur þang- að til hún fengi húsnæði. Eg varð að komast að raun um það, hvers vegna hún kom aftur hingað, vit- andi það, að slíkt yrði til þess að rifja upp liðna tíð. Henni tókst nefnilega alltaf allt, sem hún ætlaði sér ! Eg fékk sting í hjartastað, og mér tókst 30 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.