Heimilisritið - 30.05.1953, Side 34
Svo heyrði ég hann brjóta það
saman og leggja það inn í um-
slag. £g heyrði hann ganga fram
í forstofuna og kalla á hundinn:
,,Bara snögga ferð, gamli vin-
ur — út í póstkassann og heim
aftur.“
Svo heyrði ég útidyrnar lokast
á eftir honum.
Eldiviðarkubbur hrasaði til í
eldstónni, og skaer blossi brauzt
fram. Ég reyndi að hvílast sem
þægilegast í stólnum mínum. Og
stofan luktist utan um mig — hlý
og heimilisleg eins og traust virki.
Mér fannst ég vera óendanlega
örugg og hamingjusöm. *
Fróðleikur
í Englandi eyðir verkamaður að jafn-
aði einum þriðja af tekjum sínum í
matvæli.
Á fullvaxta fólki slær púlsinn að jafn-
aði 72 til 76 sinnum á mínútu, cn á
nýfæddu barni 130—-140 sinnum.
Það er talið sannað, að vírusar, sem
kunna að berast mann frá manni með
handtaki, deyja innan tíu mínútna, þeg-
ar þcir þorna í lófa manns.
Ef köngurló spynni þráð umhverfis
jörðina og þráðurinn yrði undinn upp
í hnykil, rnyndi hnykillinn vega um
það bil hálft kíló.
Auglýsingasíðan í ameríska vikublað-
inu „Life“ (ólituð) kostar hér um bil
150 þús. kr. Upplag er næstum 5 milj.
eintök.
Georg Washington átti 188 þræla.
Fólk dreymir rnest á aldrinum 20—
30 ára, en gamalt fólk dreymir tiltölu-
lega lítið.
Fuglar borða minnst helming þ)'ngd-
ar sinnar á dag.
Kvöldsukkið á unglingunum var orð-
ið svo mikið í Chicago, að lögboðið hef-
ur verið, að enginn undir 18 ára aldri
rnegi sjást úti cftir klukkan 10 á kvöld-
ín, nema í fylgd mcð fullorðnum.
(Daily Herald)
Einstefnuakstur á götum er ekki nein
nýung í hciminum. Hann tíðkaðist
cinnig í Rómaborg á dögurn Caesars.
Maðurinn er eitt af stærstu, stcrkustu
og viltustu dýnim jarðarinnar, enda hef-
ur mörgum heppnazt að drepa stór rán-
dýr með berum hnefunum.
Vestur-Bcrlín scndir fréttir til rúss-
neska hernámssvæðisins með risastóru
ljósalctri á Potzdamcrplatz^ þar sem
hernámssvæði Rússa, Bandaríkjamanna
og Breta mætast.
Kettir sleikja sig ekki einungis til
þess að þrífa sig, heldur einnig til þess
að fá D-vitamín úr feitinni á hárunum.
32
HEIMILISRITIÐ