Heimilisritið - 30.05.1953, Side 39
kom inn. ,,Er það ekki fallegt ?“
Súsan forðaðist að líta í augu
móður sinnar. ,,Þú hefðir ekki átt
að kaupa það,‘‘ sagði hún. ,,Eg
veit ekki einu sinni, hvort ég fer
— það hefur enginn boðið mér."
..Auðvitað ferðu," sagði móð-
ir hennar óþolinmóðlega. ,,Það er
nú mánuður þangað til — og þú
veizt, að drengir á þessum aldri
eru svo feimnir.“ Svo var eins og
henni dytti allt í einu nokkuð í
hug, og hún spurði: ,,Hefur El-
ísabet verið boðið ?“
,,Nei.“
,.Þarna sérðu !“ sagði frú Well-
•rr.an öllu léttari í máli. ,,Og þó
þér yrði ekki boðið af einhverjum
strákanna, þá er þetta nú aðeins
skólaball, svo þú getur farið með
annarri stelpu . . .“
,,Eg myndi heldur vilja drep-
ast.“
Frú Wellman hleypti brúnum,
en svo klappaði hún Súsan á
vangann. ,,Þér verður víst boð-
ið,“ sagði hún. Súsan kenndi í
brjósti um móður sína. En allt í
einu brosti móðir hennar og sagði
glaðlega: ,,Máske laglegi dreng-
urinn — heitir hann ekki Mike
Dean ?“
,,0, hann myndi aldrei bjóða
rnér,“ sagði Súsan og minntist
hins örugga augnaráðs Elísabetar.
Og allt í einu fann hún, að hún
gat ekki haldið áfram að tala um
f---------------------------------
Um sögrnna af Mídasi
Sem dæmi um uppruna þjóð-
sagna hefur verið tekin sagan um
Mídas konung. — Fyrir nokkru
fannst ævaforn grafreitur í Litlu-
Asíu, sem talinn er að sé legstað-
ur Mídasar konungs. Sagan segir,
að vínguðinn Bakkus liafi veitt
Mídasi þá ósk, að allt, sem hann
kæmi við, yrði að gulli. Það var
ekki fyrr en Mídas ætlaði að fara
að borða, að honum varð ljóst,
hvílíka ógæfu liann hafði kallað
yfir sig. Hann fór í örvæntingu
sinni til Bakkusar og grátbað hann
um að frelsa sig frá þessu böli.
Guðinn ráðlagði honum þá að
baða sig í fljótinu Pactolus. Af-
leiðingin á svo að hafa orðið sú,
að vatnsstraumurinn varð eins og
fegursta gull.
Það er nú sannað, að lítið eitt
gull er í farvegi fljótsins, og með
fundi grafreitarins þykir einnig
fullvíst, að Midas konungur hafi
verið uppi. Það var sem sé skráð
á töflu við innganginn, að Ate
nokkur hefði látið reisa grafhýsið
til eilíflegs heiðurs fyrir Mídas
konung í Frygien.
s,________________________________,
dansleikinn og föt og Mike.
.,Mamma,“ sagði hún, ,,ég
held ég vilji verða trúboði.“
Það kcmu undarlegir drættir
um munn móður hennar, og svo
tók hún Súsan í faðm sér. ,,Ves-
lings barn,“ sagði hún, ,,þér
verður áreiðanlega boðið.“ Sús-
an leit upp á móður sína, og sem
SUMAR, 1953
37