Heimilisritið - 30.05.1953, Side 42
segir það," sagði hún. ,,Því þú
cmeinar það ekki. £g heyrði þig
sjálfa segja við mömavu, að ég
væri ljót.“
Þar með var það sagt! Kon-
urnar litu hvor á aðra. Cecile
frænka virtist fara ónotalega hjá
sér, og móðir hennar vera sár og
reið. Hún sneri sér allt í einu að
systur sinni. ,,Þú hefur sært
hana,“ sagði hún hvasst. ,,Eg
fann, að eitthvað var að henni ..."
Hún sneri sér að Súsán. ,,Og hún
er ekki ljót, alls ekki.“
Cecile frænka var sneypuleg,
en ekki óvingjarnleg. , ,Ég meinti
það ekki þannig,“ sagði hún.
,,£g meinti að hún myndi aldrei
verða nein fegurðardís." Hún
roðnaði, eins og hún væri að
hugsa um Elísabet og skam.mað-
ist sín fyrir það.
,,Það krefst heldur enginn þess,
en hún er indæl stúlka.“ Frú
Wellman var nú verulega reið.
Súsan leit ráðalaus á þær, leið
yfir því að hafa stofnað til þess-
ara illinda.
Nú var Cecile frænka líka orð-
in reið, eins og hún hefði hert
sig upp í það. ,,Við gerum of
mikið úr þessu,“ sagði hún óþol-
inmóðlega. ,,Þú varst nú líka
sæmilega ljót á unga aldri og það
virtist ekki há þér neitt.“
Systurnar störðu andartak hvor
á aðra, og svo sagði mamma Sús-
an lágt. ,,Hvað veizt þú um
það ?“
Súsan leit undrandi og skiln-
ingssljó á þær til skiptis. Og svo
glopraði hún út úr sér, án þess
að hugsa út í það: „Frænka,
varst þú sú fallega ?“
Cecile roðnaði, en svaraði ekki,
Súsan sá svip móður sinnar mild-
ast. Hún vissi, að systrunum þótti
vænt hvorri um aðra, og að þeim
leiddist þetta báðum.
Og allt í einu sá hún allt í
nýju ljósi. Hún leit á reglulegt
andlit frænku sinnar, sem enn
var falleg, og síðan á blítt og þýð-
legt andlit móður sinnar, og henni
fannst móðir sín margfalt fallegrr
og meira aðlaðandi en frænkan.
Máske leit hún ekki þannig út f
augu.m annarra, en þannig sá
Súsan hana. Og hún hafði oft
séð föður sinn virða hana fyrir sér
og vissi, að þannig leit hún út
fyrir hans sjónum. Hún skildi, að
fegurð er meira en litur og línur,
og hún var fegin, að hún hafði
tekið eftir því í tíma, og hún vár
sannfærð um, að hún myndi
skemmta sér prýðilega í kvöld,
og að Mike leizt vel á hana, og,
og . . .
Hún tók utan um báðar kon-
urnar. „Frænka segir satt
marr.ma," sagði hún, ,,við tök-
um þetta of alvarlega." Svo kyssti
hún þær báðar rembingskoss. *
40
HEIMILISRITIÐ