Heimilisritið - 01.08.1953, Síða 8
OPERUAGRIF IV.
Aida
Ópera í fjórum þáttum, eftir Verdi.
Texti eftir Ghislanzoni. — Fyrst leik-
in í Kairó í Egyptalandi 1871.
PERSÓNUR:
Konungur Egyptalands ....... Bassi
Amneris, dóttir hans .... Messósópran
Aida, eþíópisk ambátt ..... Sópran
Radames, lífvarðarforingi...Tenór
Ramfis, æðstiprestur ....... Bassi
Amonasro, konungur Eþíópíu Bariton
Gerist í Egyptalandi á dögum
Faraóanna.
/. þáttur
l. atribi
Höll Mecnfis. Aida, dóttir kon-
ungsins í Eþíópíu, er fangi hjá
Egyptum. Æðsti presturinn segir
Rada’mes, sem elskar hana, að
hann hafi verið valinn til að
stjórna hernum, sem senda skal
gegn innrásarher Eþíópíumanna.
Þetta veldur Radames miklum
fögnuði. Hann vonar, að sér
hlotnist þessi heiður og að hann
geti lagt sigurtáknin að fótum
Aidu. Radames : ,,Fagra Aida“.
Amneris dóttir Egyptakonungs,
en hún hefur lengi borið ástar-
hug til hins unga hermanns, kem-
ur inn og undrast fögnuð hans.
Tcísöngur, Radames og Amneris :
,,Svipur þ'inn vottar“. Meðan
hann skýrir henni frá þeirri veg-
semd, sem hann á í vændum,
kemur Aida inn. Amneris veitir
Aidu og Radames athygli og
grunar þá hið sanna. Þrísöngur,
Aida, Amneris og Radames : ,,Ó,
hver örlög bíða Egyptans fóstur-
jarðar ?“ Konungurinn kemur inrt
og felur Radames með hátíðlegri
athöfn stjórn hersins. Þó að Aida
láti ekki á því bera, er hún sár-
hrygg vegna þess, að faðir henn-
ar stýrir her Eþíópíumanna.
Aida: ,,Kom sigursœll heim.“
2. atriði
Hof guðsins Ptha. Kór hof-
gyðjanna: ,,Ó, máttþi Ptha“.
Radames kemur inn. Æðstiprest-
urinn lýsir hann yfirstjórnanda
hersins og veitir honum blessun
guðanna. Bœn, Ramfis og þór:
,,Ö, vísi guð, hald verndarhendi
yfir“.
II. þáttur
1. atriði
Salur Amneris. Kvennaþór:
,,MeÖ söngvum dýrð dáum“.
Amneris er skrýdd hinum feg-
ursta skrúða vegna hátíðahalda
6
HEIMILISRITIÐ