Heimilisritið - 01.08.1953, Síða 14
ið, hvers vegna hann skyldi hafa
látiÖ hann þar.
,,Og fyrst þú ert nú á annað
borð hingað kominn, geturðu al-
veg eins borðað kvöldverð hjá
mér,“ sagði Kata náðarsamlega.
,,Eg hita upp leifarnar frá því í
gær“.
,,Hvenær komstu hekn í
nótt ?“ spurði Max.
..Klukkan hálf þrjú. Við fór-
um í bíó og fengum okkur snún-
ing á eftir.“
,,Þú ættir að vera komin í
rúmið klukkan tíu á hverju
kvöldi. Annars er hætt við að
þú standir ekki í stykkinu á dag-
inn. Eg verð að minna Donald
á það.“
Kata leit snöggt til hans.
,,Hvernig lízt þér á Donald ?“
Max hristi höfuðið. ,,Hann er
ekkert fyrir þig, Kata.“
,,Hann gat heldur ekki þolað
þig. Hann sagði, að það væri
hægt að sjá það á þér, að þú
gengir á eftir þeim ljóshærðu."
Maturinn var dásamlegur eins
og ævinlega, og á eftir hjálpuð-
ust þau að við uppþvottinn. Þeg-
ar því var lokið, skiptu þau
kvöldblaðinu á milli sín. Max
fannst reglulega notalegt. Kata
hafði útbúið sér hlýlegt hreiður
hérna, en hún varð að fara bet-
ur með sjálfa sig. Hann tók eftir
því, að hún var að fá dökka
bauga undir augun. Það var ekki
að furða, þegar hún varð að strita
allan daginn í skrifstofu og skakk-
lappast úti hálfa nóttina til þess
að reyna að krækja sér í m.ann.
Hann vildi gjarnan geta gert eitt-
hvað fyrir hana.
,,Kata,“ sagði hann. ,,Eg hef
ákveðið að hjálpa þér við að
draga hann Donald í land. Það
veit sá, sem allt veit, að ég hef
oft orðrð vitni að því, hvernig
stelpur fara að í þeim sökum !
Það er þrennt, sem þú skalt
muna. I fyrsta lagi skaltu skjalla
hann og hæla honum á hvert
reipi. I öðru lagi skaltu láta honum
finnast hann vera yfir þig hafinn.
Láttu honuim skiljast, að þú sért
m.iklu minni hæfileikum búin en
hann. Og í þriðja lagi áttu að
láta hann verða þess vísan, að
þú sér ástúðleg og undirgefnisleg
að eðlisfari, fyrst í stað auðvitað
að vissum takmörkum. Ef þú
skrifar þessi þrjú ráð á bak við
eyrað, mun þér verða framfært
það sem eftir er ævinnar.“
Kata leit á hann óútreiknan-
legum augum yfir kvöldblaðið.
,,Lánaðu mér íþróttasíðuna.“
sagði hún. ,,Þá ertu sætur.“
Daginn eftir fannst Max aftur
að ekki væri um annað að ræða,
en borða hádegisverð með einni
ljóshærðri. Það varð Crystal Ho-
12
HEIMILISRITIÐ