Heimilisritið - 01.08.1953, Qupperneq 21
Illir andar# lyf og læknar
e---------------------------------
Framhald hinnar merk.u og fróðlegu
bó\ar dr. med. Howards W. Hagg-
ards um þróun lœþnavísindanna.
Þessir fyrstu þaflar fjalla einþum
um fœÓingarhjálp fyrr á öldum.
v---------------------
Barnsfararsóttin var skæðust í
fæðingarstofnunum Evrópu. betta
var einkum sorglegt vegna þess,
að svo virðist sem engar stofnan-
ir þjóni í eðli sínu meira mann-
úðarhlutverki en einmitt fæðing-
arstofnanirnar, þar sem umkomu-
lausar konur geta fengið hjálp til
að fæða börn sín. En frá sautj-
ándu og næstum því allt fram á
tuttugustu öld, voru þéssar fæð-
ingarstofnanir, sem byggðar
höfðu verið til líknar sængurkon-
um, ekki líknarstofnanir nema
í orði og anda. I reynd voru flest-
ar þeirra banvænar þeim konum,
sem þurftu að leita á náðir þeirra.
Sjúkrahús þessi voru hreinustu
barnsfararsóttarbæli. Um skeið
steig dánartalan af þessum sjúk-
dómi í gömlu fæðingarstofnuninni
í París og fæðingarsjúkrahúsinu í
Vínarborg upp í 10 til 20 af
hundraði allra kvenna, sem lögð-
ust inn. Að síðustu varð almenn-
____________________J
ingi ljóst þetta ástand og kom til
greina að leggja þessar stofnanir
niður seim hættulegar heilbrigði
almennings. Þær myndu líka hafa
verið lagðar niður, ef nokkur önn-
ur ráð hefðu fundizt til að sjá
urnkomulausum konum fyrir hús-
næði til að ala börn sín. Þær leit-
uðu og stundum á náðir þessara
stofnana, þrátt fyrir hættuna, þar
eð hið opinbera tók þá börnin oft
upp á sína arma sem munaðar-
leysingja ríkisins, jafnvel þótt
móðirin lifði fæðinguna af. A
nítjándu öld fundust ráð til að
stemrna stigu fyrir barnsfararsótt-
inni, en fyrir þann tíma taldist
hún til hinna geigvænlegustu
smitunarsjúkdóma.
Barnsfararsótt getur byrjað
tveim stundum til tveim dögum
eftir fæðingu. Henni fylgir hár
hiti og yfirleitt öll þau einkenni
þess sjúkdóms, sem nú á dögum
er í daglegu tali kallaður blóð-
ÁGÚST, 1953
19