Heimilisritið - 01.08.1953, Síða 24
veita fæðingarhjálp í þessu landi
hafa verið talin sjálfsögð, næstum
hundrað árum eftir komu May-
flower. En þó virðist svo sem
starfsemi þeirra, sem fengust við
þessa fræðigrein, hafi þurft ein-
hverrar reglugerðar með, því að
tilskipunin segir:
,,Hér með er mælt svo fyrir, að
engin kona í þessu bæjarfélagi
megi stunda fæðingarhjálp, fyrr
en hún hefur unnið eið fyrir borg-
arstjóra, borgarritara eða borgar-
ráðsmanni . . . þess efnis: að
hún skuli fús og reiðubúin til að
hjálpa hverri konu í barnsnauð,
hvort heldur fátækari eða ríkari;
að hún skuli ekki yfirgefa fátæka
konu í nauð til að fara til ríkrar;
að hún skuli ekki telja neina konu
á, né heldur leyfa henni að kenna
barn sitt neinum öðrum en hin-
um rétta föður, og að vísu beita
til þess öllum áhrifamætti sínum
að hindra slíkt; að hún skuli ekki
gefa nokkurri konu leyfi til að
þykjast hafa alið barn, ef svo
er ekki, né heldur að gera tilkall
til barns, sem önnur kona á; að
hún skuli ekki leyfa, að barn
nokkurrar konu sé meitt né
deytt; að hún skuli kalla aðrar
ljósmæður til ráða, hvenær sem
hún álíti móður eða barn í hættu;
að hún skuli ekki gefa nein með-
ul til fóstureyðingar; að hún
skuli ekki heimta meira af neinni
konu fyrir aðstoð sína, en hún
eigi rétt til; að hún skuli ekki
eiga neinn þátt í að halda barns-
fæðingu leyndri; að hún skuli
sýna góða fraimkomu; að hún
skuli ekki leyna fæðingu launget-
inna barna. . . .“
Arið I 739 var sett sérstök deild
fyrir kennslu í fæðingarhjálp við
Glasgowháskóla, en í Ameríku
heyrðist fyrst sex árum síðar
minnzt á ,,yfirsetumann“. í blað-
inu Neu) Yorfy Wee\ly Post Boy,
22. júlí, 1745, má lesa eftirfar-
andi klausu: ,,Til næstum al-
mennrar Hryggðar og Sorgar í
þessari Borg, andaðist síðastliðna
Nótt í Broddi Lífsins, Mr. John
Duruy, M. D., Yfirsetumaður;
um hvern sannlega verður sagt
hið sama og Davíð sagði um
Sverð Golíats: enginn er honum
líkur.“ Síðar er minnzt á Att-
wood lækni í sömu borg, sem
,,minnst er sem hins fyrsta lækn-
is, sem hafði kjark til að telja
sjálfan sig yfirsetumann; það
hneykslaði sum viðkvæm eyru, og
frú Granny Brown með sína
tveggja eða þriggja dala þóknun
var ennþá álitin hinn rétti aðili
að snúa sér til, fyrir alla þá, sem
álitu að konur ættu að sýna
blygðunarsemi. ‘ ‘
Arið 1762, sama árið og New
York hélt við blygðunarsemi
sinni og viðskiptum sínum við
22
HEIMILISRITIÐ