Heimilisritið - 01.08.1953, Side 28

Heimilisritið - 01.08.1953, Side 28
Holmes brást ekki mælskan er hann tók barnsfarasóttina fyrir. Hin öflugasta andstaða gegn þeirri kenningu . Holmes, að barnsfarasóttin bærist á höndum læknanna, kom frá dr. Meigs í Fíladelfía, sem var hinn merk- asti læknir, en fádæma þverhaus. Hann stökk up á nef sér vegna þeirrar aðdróttunar Holmes, að læknirinn væri ekki hreinn um hendur, og í því sambandi vitn- aði hann í fjölmörg smitunartil- felli, sem höfðu átt sér stað und- ir handleiðslu hins mikla dr. Sipapsons í Edinborg, sem var þó ,,afburða prúðmenni", eftir því sesn dr. Meigs sagði. Homes svar- aði með því að skýra fyrst afstöðu sína í deilunni við dr. Meigs: ,,Ég móðgast ekki og geri enga tilraun til að svara skætingi. Eng- inn getur fengið mig til að rífast við sig þvert yfir rúm móður með nýfætt barn sitt við brjóst.“ Hann svarar ennfremur í sambandi við Simpson : ,,Dr. Simpsson var við líkskurð tveggja sjúklinga dr. Sidneys (barnsfarasótt), og fór höndum um hina sýktu parta. Næstu fjóraí sængurkonur, sem hann aðstoðaði, fengu barnsfara- sótt, og var það í fyrsta sinn, sem það hafði komið fyrir hann í starfi hans. Þar sem dr. Simpson er ,,prúðmenni“ (eins og dr. Meigs segir) og þar sem prúðmenni hef- ur hreinar hendur (eins og dr. Meigs segir), þá leiðir af því, að prúðmenni með hreinar hendur getur borið sjúkdóminn.“ Carlyle hefur komizt svo að orði: ,,Athugið hvernig allt það sem verðskuldar nafnið Hugsun, á upphaf sitt í Kærleika: og aldrei var sá vitringur, að göfugt hjarta slæi ekki að baki.“ Þetta er góð lýsing á Sóranusi, Paré og Holmes. Allir tóku þeir upp mál- stað hinnar fæðandi konu. Sér- hver þeirra hlýtur að hafa haft mikið af þeirri hjartagöfgi og auð- mýkt, sem gerðu þá að mikil- mennum í heiminum, þótt marg- ar aldir skildu á milli þeirra. I þennan hóp bætist hinn fjórði og mesti þeirra allra, Ludwig Sem- melweis. Þótt Semmelweis sé að engu getið á blöðum mannkynssögunn- ar og sé lítið þekktur, jafnvel þótt reist hafi verið líkneski af honum með alþjóðasamskotum í Budapest árið 1906, er afburðum hans borið þögult vitni með hverju barni og hverri móður er fæðir barn í hinum siðmenntaða heimi. Semmelweis var ekki fæðingar- læknir, en hin fjölmörgu dauðs- föll vegna barnsfarasóttar fylltu hann hryllingi og hann benti sam- læknum sínum á það, sem hann áleit vera orsökina. Bendingum hans var enginn gaurnur gefinn. 26 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.