Heimilisritið - 01.08.1953, Page 30
BÓKAORMUR
Maður nokkur átti ritverk í þremur
stórunt bindum í bókaskápnum sínum.
Hver bók var 4 sm. þykk, og þar af
voru spjölclin 1 srn., — bvort hliðar-
spjalcl hvcrrar bókar var þannig sm.
Dag einn, þcgar maðurinn tók fram
bækur þessar og fór að blaða í þeim,
varð hann þess var, að smáormur hafði
komizt í þær. Hann hafði etið sig frá
öftustu síðu annars bindis til fyrstu
síðu þriðja bindis.
Bækurnar höfðu staðið í réttri röð fast
upp við hvora aðra, og ormurinn hafði
etið sig í gegn í beinni línu. Spurning-
in er: Hvað hafði hann farið langa leið?
SKIPTIÐ VATNINU
Við höfum eina fötu, sem tekur 28
lítra og er full af vatni. Auk þess höf-
um við tvær tómar fötur, sem taka 18 1.
og 8 I. Vandinn er nú, að geta skipt
vatninu til helminga, með því aðeins að
hella því úr einu ílátinu í annað o. s.
frv. En það þarf að hella því um nokk-
uð oft! Við skrifum þá svona upp:
28. 1. fata 18 1. fata 8 1. fata
28 1. o o
Nú er um að gera að hella vatninu
úr einu ílátinu í annað, þangað til að
útkoman verður:
14 1. 14 I. o
Vandinn er sá, að gera það í sem fœst
skipti. Takið líka tímann! Ertið aðra
með þrautinni!
HUGAREIKNINGUR
Hver er mismunurinn á sex tylftum
tylfta og hálfri tylft tylfta?
LESTIRNAR MÆTAST
Tvær járnbrautarlestir mætast, önnur
er ' 116 metra löng og ekur með 10
metra hraða á sek. Hin er 207 m og
ckur mcð 9 m hraða á sek. Hvc lengi
eru þær að fara hvor framhjá annarri?
SPURNIR
1. Hvað dettur þér í hug, þegar þú
sérð hamar og sigð?
2. Hvar var fyrst reistur viti hér á
landi?
3. Hvað heita Þingvellir öðm nafni?
4. Hvað hétu hrafnar Óðins?
5. Hverrar þjóðar var Alexander
rnikli?
6. Hvað eru íbúar Asíu áætlaðir
margir?
7. Hver er skákmeistari íslands?
8. Hvað hcitir stytzta leiðin milli
Þingvalla og Vesturlands?
9. Hver er Eileen Christy?
10. Hvaða ár fæcldist Jón Sigurðsson
forseti?
Svör á bls. 47
28
HEIMILISRITIÐ