Heimilisritið - 01.08.1953, Blaðsíða 32
fann, að hann var kominn í
virðulegan félagsskap. Dryser
var snillingur í faginu, eða hafði
að minnsta kosti verið það, þar
til hann var gripinn. Og jafnvel
þá, hafði hann spjarað sig lag-
lega og sloppið með fáein ár —
og var nú laus á ný. Hver liafði
ekki heyrt getið um A1 Dryser?
Loksins fékk hann áheyranda,
sein vert var að tala við!
„Eg hef heimilisfangið hérna“,
hélt l’lunger áfram og tók blað
upp úr vasa sínum. „Eg fékk
það hjá kvenmanni, sem var
einu sinni vinnukona þar. Það
er nóg til að fylla sekk, í vegg-
skáp úr blikki“.
„Hvað er um að vera, félagi?“
Það var Dryser, sem spurði
og horfði hvasst á Plunger með
va n þólcn u n a ra ugum.
„Þetta er stórkostlegt tæki-
fáeri! Smávægilegt innbrot.
Stúlkan sver og sárt við leggur,
að það sé að minnsta kosti sex-
tíu þúsund dollara virði í hólf-
inu. Bara smávegis innbrot“.
„Smávægilegt, en hættulegt,
ungi maður“.
Plunger roðnaði. Þetta voru
ekki alveg þau orð, sem hann
hafði vænzt frá þeim mikilhæfa
A! Dr yser. Hann flýtti sér að
bæta við:
„Ekki þetta. Stúlkan segir, að
það sé aldrei vörðtir. Þau reikna
með því, að enginn viti uin stein-
ana, og að það myndi fyrst
vekja grun, ef vörður væri sett-
ur, það mvndi verða sama sem
að hrópa út, að þarna væri eitt-
hvað óvenju fémætt“.
„Láttu vera að segja mér, að
það sé svo algerlega áhættu-
laust, sem það sýnist“, hló
Dryser kaldhæðnislega. „Eg
kann mitt fag, skilurðu, og ég
ráðlegg þér að halda þig í hæfi-
legri fjarlægð frá þessu“.
„0“, sagði Plunger dauflega,
„þetta er þó sú bezta bending,
sem ég hef nokkurn tíma fengið.
Mig hefur alltaf dreymt um
reglulega stóran feng. En í hvert
sinn, sem ég hef ráðgert eitt-
hvað, hefur það annað hvort
verið of hættulegt, eða eitthvað
ófyrirsjáanlegt hefur komið fyr-
ir, svo ég hef orðið að hætta við
J>að. En þannig er Jiað' ekki í
Jjetta sinn. Þetta er alveg upp-
lagt“.
„En þú hefur enga reynslu í
að brjóta upp peningaskáp.
Hvernig ætlarðu að fara að því?“
PLUNGER tók nú litlu,
svörtu töskuna og opnaði hana.
„Jæja“, sagði hann, „hvérnig
lízt þér á Jæssi tól? Þeir, sem
gáfu mér þau, sögðu mér líka,
hvernig ætti að nota þau. Auk
Jjess er ekki meiri vandi að
30
HEIMILISRITIÐ