Heimilisritið - 01.08.1953, Blaðsíða 34
Yfir 100 bækur í verðlctun
10 ára afmœlisgetraunir Heimilisritsins
Tíu bækur verða veittar í verðlaun á mánuði allt þetta ár. í hverju hefti
mun birtast kafli úr skáldverki eftir þekkt islenzkt skáld, og er vandinn ein-
ungis sá að þekkja verkið og höfundinn. Nöfn bóka þeirra, sem til greina
koma í verðlaun, eru birt aftan á kápunni, og þarf hver og einn þátttakandi
að tilgreina, hvaða bók hann kýs.
Lausn á eftirfarandi getraun þarf að hafa borizt fyrir 15. september n.k.
því þá verður dregið um, hverjir verðlaun hljóta af þeim, sem sent hafa
réttar lausnir.
Úr hvaða kvæði og eftir hvaða skáld er eftirfarandi vísa?
Hún var kannske perla, sem týnd í tímans haf
var töpuð og glötuð, svo enginn vissi af,
eða gimsteinn, sem forðum var greyptur láns í baug,
en glerbrot var hún orðin á mannfélagsins haug.
Lausn á getraun júní-heftisins: Vísan er úr kvæðinu „Stormur“ eftir
Hannes Hafstein. — Verðlaun hlutu þessir (kosin bók tilgreind innan sviga):
1. Guðlaug Sveinbjarnardóttir, Uppsölum, Árn., pr. Selfoss (Fýkur yfir hæð-
ir), 2. Jón Gunnarsson, Hagamel 8, Rv. (Góugróður), 3. Matthea Jónsdóttir,
Hverfisgötu 32, Rv. (Klukkan kallar), 4. Ragnar Á. Þorkelsson, Hólmavík,
Strand. (Bak við tjöldin), 5. Guðfinnur Magnússon, Fjarðarstræti 7, ísaf.
(Meðan sprengjurnar falla), 6. Júlíus Helgason, Skipasundi 45, Rv. (Að
haustnóttum), 7. Ingibjörg Ingvarsdóttir, Eskifirði (Meðan húsið svaf),
8. Árni Guðmundsson, Reynivöllum 9, Selfossi (Klukkan kallar), 9. Rósa
Sigtryggs, Strandgötu 27, Ak. (Fýkur yfir hæðir), 10. Anna Björnsdóttir,
Karlsbraut 5, Dalvík (Snorrabraut 7). — Bækurnar verða póstsendar.
Seðill þessi eða afrit af honum sendist HEIMILISRITINU, Garðastræti 17,
Rvik fyrir 15. sept. n. k. (Frímerki: kr. 1.25 utanbæjar, kr. 0.75 innanbæjar).
Nafn kvæðis og höfundar: ........................................
Kosin bók (sbr. 4 kápusíðu): ...............................
Sendandi: