Heimilisritið - 01.08.1953, Page 44

Heimilisritið - 01.08.1953, Page 44
tíma bráSum ? Hvers vegna færðu þér ekki frí og ferð ?“ Svar Bens heyrSist ekki fyrir hljómlistinni. Og þá var þaS aS Dollý sagSi ofur lágt viS sjálfa sig: ,,Þú skalt ekki þurfa aS segja mér upp----------ég gefst upp af fúsum vilja !“ Og aS svo mæltu fór hún upp á loft. HÚN studdi hönd undir kinn og hugsaSi meS eftirsjá um, hvaS hún hefSi átt aS gera. Hún hefSi auSvitaS átt aS ganga beint til Bens og Kittý og segja glaSlega og full ánægju: ,,HvaS á þetta aS þýSa ? Hvers vegna tökum við ekki frí, Ben, og förum ? Ef til vill hefði hún átt aS fá móðursýkis- kast og gráta, allt þetta hefði ver- ið betra en að sitja á baksviðinu eins og steingervingur og aðhaf- ast ekkert. Framkoma hennar hlaut aS hafa sannfært Kitzý um, að Dollý væri ein þeirra kvenna, sem væri sýnt um að ná sér niðri á óvinunum. Hún tók upp púðurdósina sína, en lagSi hana svó frá sér aftur. Hún þurfti ekki á púðri að halda. Hana skorti aftur á móti tíma til aS fá sér miSdagsblund, nýja hár- liðun, ný föt og hjálp til að þvo þvottana. Ó, Ben, hugsaði hún, ég veit aS það er ekki þér að kenna. En ég vildi óska að þú gætir munað, aS þaS er ekki held- ur mín sök. Og ef þú ert ástfang- inn af Kitzý Ward---------- Henni lá við gráti, en gerði sitt ýtrasta til aS harka af sér. Hún sneri sér frá snyrtiborð- inu. A rúminu lá grófi, brúni vetrarfrakkinn hennar kyrfilega samanbrotinn, þaS hefði auðvitað ekki skipt neinu máli, hvernig um hann fór, þar sem hann þoldi alla meðferS, en af gömlum vana fór hún vel með föt sín, þau entust þeim mun lengur. ViS hliðina á frakkanum hennar lá minkaslá Kitzýar og hún hafði augsýnilega fleygt því kæruleysislega frá sér. ,,Ben, elsku, hvers vegna færðu þér ekki frí og ferð ?“ MinkasláiS var silkimjúkt við- komu. Dollý lagði það um herðar sér. Svo gekk hún aftur að snyrtiborðinu, málaði á sér var- irnar, bar á sig meira púður og greiddi sér. HefSi hún líka haft demantseyrnalokkana og Palm Beach hörundslitinn-------- En sláið eitt gerði mikinn mun. ÞaS var svo auðsjáanlega dýr- mætt, ríkidæmið virtist geisla frá því í allar áttir. Dollý virtist jafn- vel rauði kjóllinn fá á sig glæsi- legan tízkublæ, og hárgreiðslan virtist ekki lengur aðeins úfin — heldur persónuleg. Hver myndi yfirleitt taka eftir því, hvernig hár þeirrar konu liti út, sem bæri minkaslá á herðum ? 42 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.