Heimilisritið - 01.08.1953, Page 53

Heimilisritið - 01.08.1953, Page 53
Því næst spurði hann viðskipta- vininn, hvernig honum þóknað- ist að vilja láta klippa sig, tók blautt handklæði, sem lá í kuðli bak við vatnskönnuna og gerði sig líklegan til að binda það um hálsinn á Jacques. Nú þótti Jacques fulknikið af svo góðu, og hann sagði: ,.Nei, heyrið þér mig nú ! Látið mig heldur fá hreint handklæði. Það er ekki annað að sjá en þér hafið nóg af þeim!“ Og hann benti á fataskápinn, sem stóð cneð spegildyrnar hálf- opnar, svo að þar sáust staflar af hreinu líni. Alfred hlýddi án þess að segja orð, rótaði til í hillunum, fann það sem hann leitaði að og tók svo til við klippinguna. Hár Jacques .Monestiers dreif nú í smá toppum niður á gólfið. Alíred lét tímann ekki fara til spillingar, og hann var langt kominn með klippinguna hægra megin, þegar þeir heyrðu hávært óp bak við sig. ,,0, drottinn minn ! . . .“ Þeir litu báðir forviða við. Það var fáklædd stúlka, sem æpt hafði. Á gólfinu umhverfis tá- tiljur hennar mynduðust brátt smápollar, því hún var að koma úr baði og varð ekki smáræðis undrandi, er hún sá ókunnugan mann við snyrtiborð hennar, í þann veginn að láta klippa sig eins og ekkert væri sjálfsagðara. Jaques, sem enn var óklipptur vinstra megin, spratt upp af stóln- um með nef og munn full af laus- um smáhárum. Hann hlustaði á mótmæli dömunnar alveg dolfall- inn. ,,Hvers Lonar framferði er þetta eiginlega ? Þér eruð svei mér frakkur, herra minn !“ ,,Búið þér ekki hérna ?“ spurði Jacques rakarann. ,,Nei, ég hélt að þér byggjuð hér ..." Nú skildi daman samhengið í málinu og brosti rólegri. 1 raun- inni leizt henni ekki illa á Jac- ques. Hún var líka alein og leidd- ist mjög í Sainte Henmice. Jacques fór að afsaka sig, en hún tók vingjarnlega fram í fyrir honum : ,,Nei, ég vil ekki hlusta á afsakanir yðar hér núna. Þér get- ið borið þær fram á eftir, þegar rakarinn hefur lokið við að klippa yður. Þá verð ég líka búin að klæða mig.“ Þannig vildi það til af hreinni hendingu, að Jacques Monestier kynntist þessari ungu, ljóshærðu og hrífandi ekkju, sem hann eft- ir stuttan tíma kom með heim til Parísar sem eiginkonu sína. * ÁGÚST, 1953 51

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.