Heimilisritið - 01.08.1953, Side 60
fara niður aftur, þegar hann
heyrði lágt óp úr herberginu.
Katrín hafði setið á rúminu og
verið að stoppa í sokk, þegar
Ralph ko>m fyrirvaralaust inn.
t*að var nýjabrum að því fyrir
hana að stoppa sjálf í flík, því
frá því hún mundi eftir sér, hafði
hún haft stúlku til sinna umráða,
sem gerði allt sem gera þurfti.
En nú þurfti hún ekki einungis
að stoppa og bæta sínar eigin
flíkur heldur Kára líka ! I fyrsta
sinn, sei.m hún gerði við gat á
sokk fyrir hann hafði hann sagt
glettnislega :
,,Þú ert sjálfsagt ágæt á rr.örg-
um sviðum, Katrín, en sem
sokkaviðgerðarrr.aður ertu ekki
upp á marga fiska. £g hef verið
haltur í allan dag. Hefur enginn
kennt þér að stoppa í sokka, kæra
mín ? Eða kærði pabbi þinn sig
um sokkana sína alla rimpaða ?“
Þau höfðu hlegið bæði. Það
var þá, þegar þau voru betri vin-
ir. Að undanförnu, frá því kvöld-
ið, þegar hann tók hana í faðm
sér og sagði henni, að hann bæri
þrá til hennar, höfðu þau ekki
hlegið oft saman. Þau höfðu
næstum forðazt hvort annað.
Katrín hafði það á tilfinning-
unni að þetta gæti ekki haldið
svo áfram til lengdar. Fyrr eða
síðar myndi annað hvort þeirra
missa stjórn á sér, og hvað myndi
þá gerast ?
Hún heyrði dyrnar opnast;
hún hélt að það hlyti að vera
Kári, en þegar Ralph gekk inn,
spratt hún á fætur, og sokkurinn,
sem hún var að stoppa í, datt á
gólfið.
,,Hvað meinið þér með því að
koma hingað inn?“ spurði hún
hvatlega.
,,Þetta er mitt hús, er það
ekki ? Hvers vegna skyldi ég ekki
koma hingað, ef mér sýnist svo ?“
,,Þetta er kannske yðar hús,
en þetta er nú samt mitt her-
bergi,“ sagði hún kuldalega.
,,Og á meðan ég vinn hér í þjón-
ustu yðar, vill svo til að ég hef
öll umráð yfir þessu herbergi.
Þér komið ekki hingað inn, nema
ég bjóði yður. Skiljið þér það ?“
,,Ég skil það alls ekki,“ svar-
aði hann reiðilega. ,.Og ég krefst
þess að þér ávarpið mig af fullri
kurteisi.“
,,Eg sýni yður þá kurteisi, sem
við á.“ sagði hún ófeimin.
Hann gekk nær henni.
,,Og hvað meintuð þér með því
að læsa herberginu um kvöldið ?“
spurði hann. ,,Hvers vegna hald-
ið þér að ég hafi látið þetta mann-
tetur yðar flytja sig í herbergið
við endann á ganginum ? Eg
sagði yður það, þegar ég sá yður
með þýfið, að þér yrðuð að vera
góð við mig, ella myndi ég kalla
58
HEIMILISRITIÐ