Heimilisritið - 01.08.1953, Síða 67

Heimilisritið - 01.08.1953, Síða 67
SPURNINGAR OG SVOR (Frh. af 2. kápusíðu) vissu fyrir sviksemi konu þinnar, eink- uni þar sem þú segist ekki vilja skilja við liana. — Ég held að þú sért af- brýðisamur og tortrygginn í garð konu þinnar, minn kæri, og að þar sé hund- urinn grafinn. Ef þú óskar að búa áfram með konu þinni í sátt og samlyndi, ættirðu að reyna að sýna henni ást og traust fremur en að njósna um hana. Mér kæmi ekki á óvart þótt þig furðaði þá á viðhrögðum hennar og breyttri framkomu í þinn garð. VERÐ ÉG AÐ HÆTTA VIÐ HANN? Ég er 18 ára og elska 22 ára filt. Ég bef komizt að þvt, að hann er trúlofað- ttr stúlku fyrir norðan, en hann segist ekki elska hana. Kunningjar minir segja, að það sé heimskulegt af mér, að halda áfram að umgangast hann, en ég elska hann svo mikið, að ég get ekki bugsað mér að segja honum upp. Ef hann elskar ekki unnustu sína, hvers vegna riftir hann þá ekki trúlof- uninni, svo að hann sé frjáls að því að elska þig? Ég efast stórlega um að hann ætli sér nokkuð með þig til lengdar, og ég vona að þú sért svo skynsöm að hætta við hann. EINKAMÁL KONUNNAR „Eg er trúlofuð, og unnustinn álítur mig vera ákaflega saklausa og blett- lausa. Ef ég segði honum sannleikann, myndi hann sjálfsagt verða niðurbrot- inn, þótt ég búist við að hann vceri svo riddaralegur í sér, að hann myndi ekki segja mér upp. A ég að skýra honum frá leiðindamáli um mig og kvæntan mann, sem kom fyrir þegar ég var átján ára?" Mér finnst fortíð stúlku ætti að vera hennar einkamál. Oft er það líka þann- ig, að ef stúlka stígur eitthvert víxl- spor eins og þú, er síðar meir hægt að sýna henni mikla tiltrú, og hún reyn- ist áreiðanlegri og umönnunarsamari en ella. En ef þú hins vegar segir honum allan sannleikann, missir hann eitthvað, sem hann metur mjög mikils, og sjálf ynnir þú það eitt, að öðlast betri sam- vizku. Þjáðstu af þínum fyrri mistök- um ef svo ber undir, en láttu hann ekki líka þurfa að þjást af þeim. SVÖR TIL ÝMSRA Til „Ó. S.“: —- Fótrakir menn ættu að þvo fæturna upp úr heitu sápuvatni á hverju kvöldi, þurrka þá og púðra með talkúmi. Skipta ber um sokka á hverj- um morgni. Sprittböð eru líka góð. Til „Ljótunnar": — Það er einfald- ast fyrir þig að snúa þér til flugfélag- anna — og nuddlæknis. Svarið yrði of langt hér í þessum dálkum, og þú finnur eflaust viðkomandi nöfn í síma- skránni. En sértu samt í vandræðum, skaltu gefa mér heimilisfang þitt, og þá skal ég gefa þér frekari upplýsingar. Til „Bláfjólu": — Þú þarft áreiðan- lega engu að kvíða, ef eitthvað má marka af sjálfslýsingu þinni. Svona stúlkur eru einmitt þær, sem ganga út. — Kannske reynirðu of mikið til þess að ná þér í karlmann. Það borgar sig að láta þá sækja á! Eva Adams HEIMILISRITIÐ kemur út mánaðarlega. — Útgáfa og afgreiðsla: Helgafell, Veghúsastíg 7, Reykjavík, sími 6837. — Ritstjóri: Geir Gunnarsson, Garðastræti 17, símar 5314 og 2673. — Prentsmiðja: Víkingsprent, Garðastræti 17, sími 2864. — Verð hvers heftis er 8 krónur.

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.