Heimilisritið - 01.07.1956, Page 3

Heimilisritið - 01.07.1956, Page 3
HEIMILISRITIÐ JÚLÍ 14. ÁRGANGUR 1956 / Bréfið Ungfrú Evelyn rétti hinum fræga rit- handarsérfræðingi bréfið, og fékk sér sæti fyrir framan skrifborðið. „Mér þætti vænt um, ef þér vilduð segja mér, hvað þér lesið úr þessari skrift,“ sagði hún. Ritliandarsérfræðingurinn leit á hana augnablik með aðdáun. Hún var mjög glæsileg; og fallega, bláa göngudragtin, sem hún var í, féll eins og hún væri steypt utan um hana. „Sjálfsagt," sagði hann, „ég skal strax athuga það.“ Hann náði í stækkunargler sitt og hóf að rannsaka bréfið. Þegar hann hafði skoðað það gaumgæfilega í nokkr- ar mínútur, leit hann upp. „Þetta er einhver sú fallegasta rit- hönd, sem ég hef verið beðinn að fella dóm yfir,“ sagði hann. „Karlmannleg, ákvcðin og villulaus. Hvert orð er eins og lítið, sjálfstætt meistaraverk. Sá, scm hefur skrifað þetta bréf, hefur mjög sjálfstæðan persónuleika; ákveðinn mað- ur, sem aldrei stígur hið minnsta víxl- spor. . . . “ Nú greip ungfrú Evelyn fram í fyrir honum: „Allt þetta, sem þér hafið sagt mér, skiptir ekki máli. Sjáið þér til, það sem ég vddi helzt fá að vita, er hvað skriftin segir um sannleiksást bréfritar- ans. Ég skal nefnilega segja yður, að það er unnusti minn, sem hefur skrifað bréfið.“ „Þá get ég svo sannarlega óskað yður til hamingju ungfrú, sagði rithandarsér- fræðingurinn. „Þér getið verið öldungis rólegar. Þegar unnusti yðar skrifar hérna: ég mun vera þér trúr, þar til dauðinn aðskilur okkur — þá er það hans hjartans meining. Hann myndi aldrei nokkurn tíma dreyma um að svíkja það loforð, sem hann gefur í þessu bréfi.“ „Kærar þakkir," sagði ungfrú Evelyn. „Nú þarf ég ekki að vita meira. Ég fann nefnilega þetta bréf í tösku vin- konu minnar." * 1

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.