Heimilisritið - 01.07.1956, Page 7
ert undarlegt. Sumar aí þessum
fagursköpuðu stúlkum verða fyrir-
sætur eða sýningardömur í tízku-
verzlunum. Aðrar verða ekki
annað en fyrirsætur hjá læknum
sínum — og á þann hátt geta
þær þjónað löngun sinni til þess
að sýna sköpulag sitt, í fyllsta
sakleysi að því er virðist, því að
í slíkum tilfellum er það nauðsyn-
legt.
Hið eina, sem læknirinn getur
gert, er að láta sem hann taki
alls ekki eftir sköpulagi stúlk-
unnar.
Silkináttkj óllinn
Það gerðist fyrir mörgum árum,
þegar ég var ungur kandidat á
stóru sjúkrahúsi, að þar var gift
kona sjúklingur, sem gætti fyllstu
skynsemi og svaf í ullamáttkjól
og prjónaðri nátttreyju. Þetta var
um vetur og hún lá ein í stofu,
svo að hún gat ráðið því sjálf, í
hverju hún svaf.
Því miður gleymdi hún allri
skynsemi, þegar ég eða einhver
annar læknir var væntanlegur á
stofugang. Þá klæddi hún sig í
„tælandi" silkináttkjól og lá
skjálfandi og nötrandi í rúminu í
von um aðdáunarbros á andliti
læknisins.
Hún hefði móðgast stórlega, ef
ég hefði sagt við hana:
,,Þér eruð ekki hamingjusöm í
hjónabandi yðar, og þér finnið
ánægju og vellíðan færast yfir yð-
ur, ef þér getið stillt sjálfri yður
út þannig, að það sé ekki hætiu-
legt. Þér ættuð bara að vitu, hvað
við læknamir emm orðnir vanir
svona löguðu, og hvað þarí að
ganga langt þangað til okkur
finnst það lokkandi!"
Þetta hefði verið hin rétta sjúk-
dómsgreining, en hún hefði án
efa vísað þessu á bug og talið
það meiðandi fyrir sig.
Ég man eftir annarri konu, sem
var sjúklingur minn. Hún hringdi
til mín og bað mig að koma strax,
því að hún hefði skyndilega feng-
ið svo mikinn hjartslátt.
Ég ók strax til heimilis hennar,
sem var í myndarlegu einbýlis-
húsi í úthverfi borgarinar. Þjón-
ustustúlkan, sem opnað fyrir mér,
sagði að frúin væri úti í garði og
að ég gæti gengið beint þangað
út.
Ykkur hlýtur að vera ljóst, hvqð
mér brá, þegar ég kom að hinni
ungu og fögru forstjórafrú í lysti-
húsi í garðinum, berháttaðri með
enga spjör utan á sér.
„Ég vissi, að þér þurftuð að
skoða mig, læknir," sagði hún
brosandi, „svo að ég vildi flýta
fyrir yður með því að fara úr föt-
unum áður en þér kæmuð."
Ég sagði henni kuldalega, að
ég vildi sjálfur segja sjúklingum
JÚLÍ. 1956
5