Heimilisritið - 01.07.1956, Síða 9

Heimilisritið - 01.07.1956, Síða 9
læknis og spyrja eftiríarandi spurninga: „Viljið þér rannsaka móðurlíf mitt? Viljið þér segja mér, hvort ég er barnshafandi? Viljið þér segja mér, hvort ég er rétt sköpuð fyrir hjónabandið?" — ef konan hefur í rauninni enga óstæðu né áhuga á að fá svör við þesum spurningum. En það eru hreint ekki svo fáar konur, sem gera þetta. Sem betur fer eru þær fáar Mér er það þó ánægjuefni að geta tekið fram, að fyrir hverja eina konu af þessari manngerð, eru tvö hundruð heilbrigðar og skynsamar. Það er þeim að þakka að við læknarnir höfum ekki misst alla trú á kvenþjóðina. Konur, sem eru hamingjusam- ar í hjónabandinu, eru sjaldnast hrifnar af því að þurfa að láta lækni skoða sig. Þær hafa ekki áhuga á því að sýna nekt sína, og það er ekki ósjaldan, sem læknirinn verður að leggja tölu- vert á sig, til þess að fá þær til þess að fara úr þeim fötum, sem nauðsynlegt er vegna ransóknar- innar. Þetta eru hin eðilegu viðbrögð, einkanlega ef um er að ræða ung- ar stúlku, sem hlotið hafa strangt uppeldi. Stöku ungar stúlkur neita bein- JÚLÍ, 1956 línis að láta skoða sig, jafnvel þó að hjúkrunarkona sé viðstödd. Þær fara að gráta, ef læknirinn reynir að sýna þeim fram á það, að afstaða þeirra sé ekki réttt. Meirihluti kvenna lítur þó eðileg- um augum á þessi mál og koma fram af sömu stillingu og lækn- irinn. Þær konur, sem koma fram eins og þær væru í kvennabúri á því augnabliki, sem þær koma inn í læknisstofuna, eru venjulegast konur, sem hljóta ekki fullnæg- ingu í samlífinu með eiginmönn- um sínum. Á yfirborðinu eru þess- ar konur búnar öllnm dyggðum og tíðum svo kuldalegar við eig- inmenn sína, að eiginmaðurinn getur hreint ekki skilið þá „töfra”, sem konan reynir að beita sak- lausan lækninn. Þessar konur nota lækninn —- ef til vill óafvitandi — skeytingar- laust sem varaskeifu fyrir elsk- hugann, sem þær þora ekki að verða sér úti um. Þæ'r eru hrædd’- ar við allt, sem varðar kynferðis- lífið, en þær leiða tilfinningalíf sitt inn á þær brautir, sem lítil hætta er á því, að nokkuð geti orðið að. Um leið blekkja þær sjálfa sig — en ekki hinn reynda lækni — og dylja fyrir sjálfum sér löngun- ina til þess að „stilla sjálfum sér út", og þær hafa þá aðferð, að sannfæra sjálfar sig um það fyrir- X

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.