Heimilisritið - 01.07.1956, Page 14
JACK DEMPSEY, flækingurinn
frá Saltvatnsborg, varð sá lit-
skrúðugasti af öllum hnefaleikur-
um á hinni gullnu öld slagsmál-
anna, og á árunum milli 1920 og
1930 náði hann feikna vinsæld-
um, sennilega þeim mestu, sem
nokkur íþróttakappi hefur notið.
1 hnefaleikasölunum, þar sem
andrúmsloftið var þrungið spenn-
ingi og æsingu, varð hann mesta
hetja í sögu hnefaleikanna.
Sá
mesti
þeirra allra
★
Jack Dempsey
ÍK
En sjálfur sagði hann: „Fyrst
og fremst er ég umrenningurinn,
í öðru lagi boxarinn.”
Hann var kolanámumaður í
Criple Creek, seldi blöð og ís á
sama stað, áður en hann upp-
götvaði, að líkamsatgervi hans
var einkar vel fallið til hnefaleika.
1 útliti minnti hann á Hollywood-
hetju, en í framkomu og göngu-
lagi var hann flækingurinn.
Hann var varla tvítugur þegar
hann gerðist atvinnuhnefaleikari,
ferðaðist um Norður-Ameríku og
skoraði á hvern þungavigtar-
kappann af öðrum. Stíll hans var
eins frumstæður og hugsazt gat,
en hann treysti á sína eldsnöggu
hægri hönd, sem gat slegið uxa
12
HEIMILISRITIÐ