Heimilisritið - 01.07.1956, Side 20
ir álitu, að þessi meðferð á upp-
vaxandi heimsmeistaraefni myndi
hafa varanleg áhrif til hins verra
á frama hans á hnefaleikabraut-
inni.
Fimmtán ára gamall keppti
þessi grannvaxni námudrengur
fimmtán sinnum, sextán ára var
hann sleginn í rot, sautján ára
keppti hann yfir tuttugu sinnum,
harður skóli fyrir ungling á þeim
aldri.
Aðalstyrkur Carpentiers var þá
þegar stutt hægTi handarhögg,
eldsnöggt og hættulegt. Venju-
lega varð það rothögg.
Fyrsta franska meistaratitil
sinn, í léttavigt, vann hann saut-
ján ára gamall. Árið eftir —
olympíuárið í Stokkhólmi — vann
Carpentier einnig Evrópumeist-
aratitilinn í rnillivigt og varð
brátt, eins og hinn frægi franski
þolhlaupari, Jean Bouin, einn af
vinsælustu sportsmönnum Evrópu.
Og svo átti fyrir honum að
liggja að mæta öðru átrúnaðar-
goði boxheimsins, Jack Dempsey.
Franski snilliboxarinn og fyrrum
námumaður, George Carpentier,
gegn ameríska snillingnum og
flækingnum, heimsmeistaranum í
þungavigt, Jack Dempsey.
Allir íþróttaáhugamenn heims-
ins stóðu á öndinni af eftirvænt-
ingu vegna hins fyrirhugaða bar-
daga, en frásögn af þeirri viður-
eign verður að bíða betri tíma. *
1 Kaupmannahöfn
Maður nokkur þurfti að hafa tal af Theódór Krabbe, sem bjó í
Kaupniannahöfn. Hann gekk því heim til hans og knúði dyra.
„Er Theódór heima?“ spurði maðurinn. Stúlkan áttaði sig ekki alveg
strax, vegna þess að þar í landi er eftirnafnið meira notað. Hún spurði
því: „Theódór hvað?“ Maðurinn laut þá að henni og hvíslaði: „Þeir
kalla hann sumir krabba.“
Misgi
■aningur
Hringt var til lögreglunnar í enskri bor? af rnanni, scm til-
kynnti að stýrinu, mxlaborðinu og hemlunum hefði hcfði verið stol-
ið úr bílnum hans. Lögreglan lofaði að rannsaka málið.
Nokkrum mínútum seinna hringdi sami maður aftur: „Þið þurfið
ekki að leita að hlutunum, sem ég minnást á áðan. Ég hafði nefni-
lega af misgáningi sezt í aftursætið — hikk!“
18
HEIMILISRITIÐ