Heimilisritið - 01.07.1956, Síða 36

Heimilisritið - 01.07.1956, Síða 36
Og hefði ekki mjóróma rödd kall- að úr dyrunum: ,,Jean, Jean," hefði þessi ástríðublossi ef til vill fengið að ráða gerðum okkar. Barbara hafðí augsýnlega hætt við að sofna. Hún kom hlaup- andi til föðurs síns. ,,Synda," sagði hún og hallaði undir flatt á þann hátt, sem gerði hana ó- mótstæðilega í mínum augum. ,,Biddu Jean að fara með þér,” sagði Roy. Þá sneri hún sér að mér. „Sérðu? Barbara er búin að fá nýjan sundknött." Ég fór með hana niður á ströndina og það hressti mig dálítið að kafa í brim- rótinu, enda þótt hugur minn bergmálaði: Roy, Roy! Brimið var var of mikið til þess vel gott væri að synda, svo ég ginnti Barböru til þess að leika sér með stóra, útblásna knöttinn sinn á vatns- bakkanum. Við voru að leika okkur í bezta bróðerni, hentum knettinum á milli okkar, en þá vildi það ein- hvem veginn, til, að kast geigaði hjá mér og knötturinn fór á sigl- inngu út á hafið. Öldurnar náðu honum og köstuðu honum til, sog- uðu hann út og hentu honum til baka aftur. Ég elti hann niður ströndina og hálf hlæjandi reyndi ég að ná taki á hinum hála hnöttótta hlut. Ég handsamaði hann með því að henda mér ofan á hann og dróst gegnum þungt brimið til lands. Ég þerraði vatnið úr augunum og síðan æpti ég: „Barbara!" Hún var hvergi sjáanleg. Ég henti um græn- og hvítröndóttu sólhlífinni, leitaði eins og óð væri, sneri aftur niður að sjónum, sem freyddi og ólgaði, blár og grænn og hvítur og banvænlegur. Barbara!" Risavaxin alda brotnaði, og í froðunni sá ég hana með annan þrýstna handlegginn á lofti, það glitti í rauð sundföt og síðan ekk- ert, ekkert. Á augabragði var ég farin að ryðjast tryllingslega í gegnum öldurnar, hrópandi, biðj- andi til guðs unz ég fann hana og hjarta mitt hætti að slá, þar til við vorum báðar komnar á land og lágum saman móðar og hóst- andi vatni. „Barbara, Barbara," sagði ég veikum rómi. Hún flissaði. „Ég er öll sölt." Ég dró hana að mér agndofa yfir hlátri hennar. Hún skildi ekki hve nálægt dauðanum hún hafði komizt. Hún skildi ekki hættuna, sem fólst í rísandi öldum, en ég skildi hana og hyldjúp hryggð greip mig. Ef ég hefði ekki náð til hennar nógu snemma . . . Hún færði sig nær og kyssti mig. „Jean gættu mín vel," sagði 34 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.