Heimilisritið - 01.07.1956, Qupperneq 37
hún full trúnaðartrausts. ,,Ég elska
þig, Jean."
„O, elskan,'' sagði ég andvarp-
andi. ,,Jean elskar þig líka, svo
mikið, svo mikið. Ég skal alltaf
gæta þín. Ég skal sjá um að þú
verðir aldrei særð.''
Varir mínar lokuðust hægt og
ég starði á hana, á ávalann á
fínlegri hökunni, hlægilega löngu
augnahárin og sannleikurinn
rann upp fyrir mér ljóshfandi og
bitur. Ef til vill hafði ég nú þegar
gert eitthvað til þess að særa
hana með því einu að fara inn til
Roy. Það skipti engu máli hversu
sambúð Roy og Ellenar var á-
rekstrarsöm — og það var eitt-
hvað að á milli þeirra — ég hafði
engan rétt til þess að vera hlut-
dræg. Ef ég að lokum kæmi öllu
í háa loft, hver mundi þá líða
mest? Barbara.
Sektirtilfinningin gerði mér
þungt um andardráttinn. Ég vissi
hvað ég varð að gera: ég varð
að forðast Roy — og láta hann
forðast mig.
ÉG VAR þakklát fyrir þá fáu frí-
daga, sem ég átti frá vinnu minni
um helgina fjórða júlí. Einhvern-
tíma sagði mamma: ,,þú ert
þreytuleg," og ég tautaði: „Bar-
bara er erfið. Það er allt í lagi
með mig." En ég leit á móður
mína, sem var önnum kafin yfir
reikninshaldi sínu og hugsaði
með beizkju: Ef þú værir öðruvísi
gæti ég komið til þín og opnað
hjarta mitt. Ég er hrædd. Roy
Johnson skelfir mig. Ég er öll í
uppnámi út af honum. Ég þarfn-
ast hjálpar þinnar.
Til hvers var það? Mamma
myndi aðeins álíta mg kjánalega,
ímyndunarveika. Ég gat ekki
einu sinni sagt upp atvinnu minni
án fullnægjandi ástæðu, nógu
góðrar til þess að hún tæki hana
gilda. Ég varð að gegnumganga
þetta alein, fálma mig áfram.
Þótt undarlegt megi virðast, var
það Roy, sem hjálpaði mér —
án þess að segja orð, án þess að
líta við mér. Þegar ég sá hann
í vikunni á eftir, vissi ég, að einn-
ig hann hafði tekið sína ákvörð-
un: Hætta, snertið ekki. Ég held,
að þá fyrst hafi ég farið að elska
hann einlæglega.
Ég tók eftir því, að hann var
farinn að fara alltof margar ferðir
í vínskápinn og ég varð gripin
ótta og meðaumkvun með hon-
um. Það var ekki ég eingöngu,
sem olli honum hugarangri. Það
var eitthvað annað, djúp, nag-
andi þjáning innra með honum,
sem var að vaxa, vaxa, vaxa.
Á laugardagsmorguninn —
það var ljómandi veður — fór ég
inn í eldhúsið og fannst hið óró-
lega andrúmsloft í húsinu fylla
JÚLÍ, 1956
35