Heimilisritið - 01.07.1956, Síða 48
I lok októbermánaðar kom kona
Mozarts, Constanze, heim og brá í brún
er hún sá, hvernig maður hcnnar leit
út. Ancliit hans var innfallið og beinin
sáust standa fram, en augun innsokkin.
Hann sagði þá konu sinni að sér hefði
verið gefið inn eitur, en ekki vildi hann
segja henni, hver það hefði gert.
Heilsu hans hélt áfram að hraka, 02:
Mozart var viss um, að dauði hans væri
í nánd. Hann tók að skrifa sálumess-
una, sem gráklæddur maður pantaði hjá
honum fyrir ókunnan mann gegn borg-
un, en sem vitað er, að var Walsegg
greifi í Vínarborg.
Mozart vannst ekki tínu tii að ljúka
við sálumessuna, áður en hann lézt,
þann 5. desember 1791-
Mörgum hefir þótt undarlegt, að
líkama Mozarts skyldi vera flevgt í gröf
með mörgum fátæklingum og enginn
skyldi fylgja honum til grafar, þótt
nokkrir nánustu vinir hans kærnu til
kirkjunnar, cn sneru síðan heim á miðri
lcið til grafarinnar, af því að veðrið var
vont.
Enginn af íbúum Vínarborgar hafði
látið frá sér fara jafnmik'.ð af dýrlegri
músík cins 02 Mozart. Vínarbúar erti
og hafa lengi vcrið glaðir og góðgjarn-
tr mcnn, sem kunna vel að meta allt
sem fagurt er. Þeir dáðu Jóhann Strauss
og gerðu veg hans mikinn. Hvernig
mátti það vera, að þeir skyldu ekki
flykkjast að, þegar mcsti tónsnillingur
sem heimurinn hefir nokkurntíma séð,
var til moldar borinn? Ekki gátu þeir
hafa glcynit honum, því að hann var
ekki nema 35 ára cr hann dó og allir
þekktu Töfraflautuna, sem hann hafði
nýlega lokið við, auk allra þeirra dá-
samlegu verka sem áður höfðu frá hon-
um komið?
Þessi spurmng hefir staðið í mörgum,
og henni verður víst aldrei svarað við-
unanlega.
En spurningunni um það, hvort grun-
ur Mozarts unt að hann hafi verið drep-
inn á citri, hafi við rök að styðjast, hef-
ur aftur og aftur skotið upp, þótt flestir
hafi hneigzt td þess að vísa hcnni á bug
scm hugarburði sálsjúks manns.
Hinsvegar er á það að líta, að ekki
sést neins staðar af bréfum Mozarts,
sem eru til fram á síðustu daga hans, að
hann hafi verið andlega ruglaður að
ne.nu öðru lcyti. Hugsun hans er skýr
og heið og allt, sem hann skrifar er hon-.
um iíkt og fullt af gamansemi. En hann
er viss um, að liann eigi skammt eftir
ólifað, og hann hefir orð á því við konu
sína að sér hafi vcrið gcfið inn eitur.
Töfraflautan og leyndarmál
frímúrara.
ÞAÐ cr viðurkcnnt af öllum, að efnf
Töfraflautunnar er tekið frá frímúrara-
reglunni, og að það sem gerist í leikn-
um er samkvæmt kenningum og regl-
um hennar, meðal annars allar hrelling-
arnar sem unga fólkið verður að ganga,
í gegn um og á að vera eftirlíking á því
sem frímúrarar verða að ganga í gegn
tim, þegar þeir cm að taka stig sín. Höf-
46
HEIMILISRITIÐ,