Heimilisritið - 01.07.1956, Qupperneq 55
stofu föður síns í London, er jctfn
eyðslusamur og svallgefinn og
faðir hans var samhaldssamur.
Rol!s Royce, einglyrni, tilhald og
hnappagatsorkideur Nubars (sem
skipt var um tvisvar á dag) fóru
í taugarnar á gamla Gulbenkian.
Sambúðin versnaði stöðugt milli
föður og sonar. Dropinn, sem varð
til þess, að út úr bikamum flóði,
var þó dálæti Nubars á köldum
kjúklingum til morgunverðar og
þá pantaði hann daglega og lét
senda til skrifstofu sinnar frá einu
dýrasta matscfuhúsi í London.
Gulbenkian gamli varð fjúkandi
vondur og sleit öllu samneyti við
soninn. Nubar höfðaði mál gegn
föður sínum og krafðist 70 mill-
jóna króna skaðabóta. Sættir tók-
ust þó í málinu og síðan það var,
virtist sambúðin milli föður og
sonar að mestu árekstralaus — í
það minnsta á yfirborðinu. Gul-
benkian fór snemam á framaferli
sínum að hafa áhuga fyrir að
safna verðmætum listmunum.
1922 keypti hann fasteignina nr.
51 við Avenue d'ena í París.
Hann hafði þá þegar vanrækt
London árum saman og verið bú-
settur í París. Þrátt fyrir kaupin
á nýju höllinni, bjó hann áfram
á hinu fræga Hotel Ritz, en í því
hafði hann í millitíðinni keypt
talsverðan eignarhluta.
Um þessar mundir fylltist húsið
á Avenue d'Iena af því dæma-
lausasta listasafni, sem um hefur
getið í veraldarsögunni. Þar
hlóðst upp glæsilegasta safn
heimsins af ítölskum silfurmun-
um, egyptskum höggmyndum og
málverkum gömlu meistaranna.
1946 var safnið virt á 1 milljarða
króna og það er einkennandi fyr-
ir þau áhrif, sem Gulbenkian
hafði, að þó að allar aðrar eignir
í sömu götunni væru hemumdar
eða jafnaðar við jörðu af Þjóð-
verjunum í stríðinu var ekki svo
mikið sem farin ein einasta ráns-
ferð í höllina við Avenue d'Iena.
Sjálfur var Gulbenkian flúinn til
Vichy ásamt frönsku stjórninni,
en svo sterkur var hann, að jafn-
vel Hitler og Göring, sem annars
rændu gegndarlaust, þar sem þeir
gátu, þorðu ekki að hrófla við
eignum hans.
1942 flýði ríkasti maður heims
frá Vichy til Hótel Aviz í Lissa-
bon í Portúgal, og það varð heim-
ili hans þar til hann lézt fyrir
skömmu. Það er eitt af fullkomn-
ustu gistihúsum í Evrópu, og 25
herbergin og þjónustuliðið 110
talsins minnir meira á einkahöll
en gistihús. Hér hafði Gulbenkian
komið sér fyrir í álmu, sem var
svefnherbergi, baðherbergi, stór
setustofa og flísalagðar svalir,
sem sneru út að hinum fagra
lystigarði gistihússins, prýddum
JÚLÍ, 1956
53