Heimilisritið - 01.07.1956, Side 66
SPURNINGAR OG SVÖR. .
Framhald af 2. kápustðu)
mál er það, að auðveldara er að gefa
ráð en halda þau. Lífið er of stucc til
þess að eyða því í illindi. Athugaðu vel
hinn gífurlega aðstöðumun ykkar: að
þú ert helmingi yngri en hún og átt
allt lífið framundan á mesta blóma- og
uppgangstímum, sem á Islandi hafa
komið. En hún aftur á móti er búin
að lifa sitt fegursta. Láttu bituryrði
hennar ekki hafa áhrif á þig, því að í
hvért skipti, sem henni tekst að hleypa
þér upp, hefur hún unnið smásigur.
Reyndu að koma auga á það skoplega
í fari hennar og þá mun henni veitast
erfitt að raska hugarró þinni. Minnztu
þess einnig að óverðskulduð gagnrýni
er dulbúið hrós. I hvert sinn sem hún
ber þig röngum sökum, er hún í raun
og veru að hrósa þér.
SVÖR TIL ÝMSRA
Svar til R. K.: — Margar stúlkur
vcrða skotnar í bílstjórum og flestir ung-
lingar fá ,,bíladellu“. Hefurðu t. d. ekki
tekið eftir auglýsingum í blöðunum svo-
hljóðandi: „Vantar vinnu, hef bílpróf“.
Það er einhver æsing og rómantík yfir
bílstjórastarfinu, sem gcrir þetta að
verkum. Getur ekki verið, vina mín, að
þú sért með smávegis „bíladellu", það
er að segja, að þú sért skotin í bílstjór-
anum, vegna þess, að hann er bílstjóri,
en ekki manninum sjálfum. Og þar sem
hann þar að auki er með annarri stúlku,
þá virðist hann ekki endurgjalda tilfínn-
ingar þínar, og gæti hafa spurzt fyrir
um þig, vegna þess, að honum fyndist
þú veita sér óvenjumikla athygli.
Svar til Ebba: — i. Þetta er mjög
algengt hjá unglingum, en eldist af
flestum. Það er sjálfsagt fyrir þig að
leita læknis, en þetta er langt frá því að
vera eins óttalegt og þú heldur. Athug-
aðu að drekka ekki mikinn vökva, áður
en þú ferð að sofa. — 2. Nei, það er
alveg ástæðulaust fyrir þig að óttast það.
Þetta er tvennt ólíkt. — 3. T. d. í apó-
tekum. — Viðvíkjandi 2. og 3. spum-
ingu vil ég biðja þig að hugleiða, hvort
það sé ekki of snemmt fyrir þig að
hugsa um slíka hluti. Það er ekki venja,
né heldur æskilegt, að piltar og stúlkur
hafi samfarir, fyrr en þau eru gift, enda
fylgir því ábyrgð, sem getur reynzt
unglingum ofviða.
r> o
Svar til Pölltt: — Það þykir prýði á
hverri mey, sem getur roðnað yndislega,
og mörg fullorðin kona vildi cflaust gefa
töluvert til að öðlast þann eiginleika
aftur. Til þess að vinna bug á minni-
máttarkennd þinni, skaltu reyna að
skapa þér sjálfstraust. Reyndu að ná
fullkomnun á einhverju sviði og helzt
að gera eittlivað betur en flestir aðrir.
Þú skrifar t. d. mjög vel, og gætir ef-
laust náð þar mikið lengra. En reyndu
umfram allt að vera eins og þér er eðli-
legast. Mér finnst það mjög skynsam-
legt af þér að ræða þetta við heimilis-
lækninn þinn. Hann mun eflaust gefa
þér góð ráð og vísa þér á aðra lækna, ef
hann telur þess þörf.
Vera
HEIMILISRITIÐ kemur út mánaðarlega. — Útgáfa og afgreiðsla: Helgafell,
Veghúsastíg 7, Reykjavík, sími 6837. — Ritstjóri: Ólafur Hannesson, Ásvalla-
götu 65, Reykjavík. — Prentsmiðja: Víkingsprent, Hverfisgötu 78, sími 2864. —
Verð hvers heftis er 10 krónur.
64
HEIMILISRITIÐ