Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Síða 9

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Síða 9
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. sEr það hennar eini galli að hún erveik?« íEr það eigi hið allra versta?« spurði Ahr- nell. »Er nokkuð skelfilegra fátækum manni en veik eiginkona? Rótt jeg hefði tilbeðið hana, mundi ást mín samt hafa dofnað við sjúkrabeð hennar og hún orðið mjer þung byrði. Hlýð nú á hina stuttu æfisögu mína: Jeg var eins og þú vissir sjálfboðaliði í toll- ráðinu, er þú hjeist sem stýrimaður á braut og mjer virtust framtíðarhorfur mínar miklu glæsilegri en þínar. Jeg var vinnugefinn, vel látinn af yfirboðurum mínum og reglumaður. Jeg var að vísu bláfátækur, því að jeg hafði eigi fremur en þú erft neitt eftir foreldra mína, en jeg var vanur vinr.u og skorti. Jeg var far- inn að komast allvel af og alt mundi hafa leikið í lyndi, ef örlögin hefðu eigi látið fagra og saklausa mær verða á leið minni. Jeg var þá 26 ára að aldri, hún að eins 18. Hún átti heima í sama húsi og jeg; móðir hennar var veitingamannsekkja. — Rær höfðu ofan af fyrir sjer með saumum. Er jeg tyrsta sinni leit Marianne, voru örlög mín ákveðin, og eftir árs kynni kvæntumst við. Regar maður er ást- fanginn, blasir alt við í dýrðarljóma. Pannig fór mjer einnig. — Ást og vinna; af þeim tvdm þáttum var framtíð okkar ofin og fyrsta árið færði engin vonbrigði; við höfðum þá bæði gnótt starfa og þar af leiðandi komumst við vel af. — Móðir Marianne bjó hjá okkur og starfaði með okkur, og sameinuð viðleitni okkar allra var krýnd blessun. — Að ári liðnu fæddi kona mín mjer dóttir. Nú var hún önn- um kafnari en áður og gat eigi unnið að stað- aldri sem fyr; en þetta varð þó eigi að tjóni, þar eð jeg og móðir hennar unnum nóg inn, og aftur leið ár án þess að nokkurt ský byrgði hamingjusól okksr. Haust var komið. Tengda- oióðir mín fjekk lungnabólgu og Ijetst að nokkr- um vikum liðnum. Atburður þessi breytti skipulagi heimilis okkar og hafði í för með sjer 'aukin gjöld, sem voru okkur þungbær, þar eð tekjurnar voru rýrar. Tengdamóðir mín átti eigi annað en nokkur húsgögn, sem við notuðum í sameiningu. Hin litla fjárupphæð, 5 , sem við höfðum dregið saman, gekk til þurð- ar meðan á veikindunum stóð og jeg varð í skuld um útfararkostnaðinn. Jeg fjekk lán hjá Heugel og má álíta það upphaf fátæktar minn- ar, sem smám saman fór i vöxt. Eftir greftr- un tengdamóður minnar tók Marianne að vinna um nætur. Hún lagði mjög mikið að sjer, en við vorum að eins tvö til starfa, en þrjú á fóðrunum. Tekjur okkar nægðu að vísu, en skuldin, sem jeg var komin í, varð ógoldin ár- um saman. Er við höfðum verið gift 4 ár, tók heilsa konu minnar að bila. Hún fjekk í fyrstu höfuðverk og síðan þráláta taugasýki. Átti hún lengi við þetta böl að stríða, og vann, er hún nokkurt viðþol hafði. Loks fjekk hún ákafa hitasótt og lá rúmföst mánuðum saman. Starf mitt eitt fullnægði eigi þörfum okkar. Jeg varð að leita mjer einhverrar at- vinnu, seni þegar í stað gæfi af sjer peninga, og var jeg þá knúður til að vanrækja störf mín í tollráðinu. Undir eins og Mariantie komst á fætur, tók hún að sauma, en hún hafði mist viðskiftavini sína, og er henni hepnaðist að fá atvinnu, þoldi hún saumana að eins stutta stund í einu. Með ári hverju urðuin við fátækari, án vonar um, að fram úr rættist fyrir okkur, er Marianne fyrir ári meiddist í fæti. Hún hirti ei um sárið og þar kom, að hún varð af þeim sökum að leggjast, og þjáð- ist einnig af taugaveiklun. Neyð, skortur og hungur hjeldu inn-eið sína í heimkynni mitt. Jeg gat eigi rækt starf mitt og framtíðarhorfur mínar urðu að engu. Jeg er nú tötralegur betlari, sem eigi fær vinnu, því að hver veitir þeim manni atvinnu, sem tötrum er klæddur? Fjelagar mínir þykjast eigi lengur þekkja mig; fyrverandi yfirboðarar mínir svöruðu mjer, er jeg bar upp vandkvæði mín fyrir þeim: Hver bað yður að kvongast, þar eð þjer áttuð ekk- ert til þess að sjá fyrir fjölskyldu yðar? Jeg hefi nú verið vinnulaus í tvo mánuði. Kona mín og barn mundu fyrir löngu vera dáin úr hungri, ef miskunnsamir menn hefðu eigi gef- ið þeim að eta. Leigan er eigi goidin, og jeg á eigi stól til
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.