Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Síða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Síða 10
6 NYJAR KVOLDVOKUR. að sitja á, eða kodda tii að hvíla hið þreytta höfuð mitt; eigi bita brauðs til að seðja hung- ur mitt og eklcert tæki til að afla mjer neins á heiðvirðan hátt. Nú spyr jeg þig, hvort eigi sje von, að jeg hati konu þá, sem hefir bakað mjer alla þessa eymd? Hefði jeg eigi kvong- ast, en eingöngu Iagt stund á embættisstörf mín, laus við allar þessar lamandi, sífeldu á- hyggjur, mundi jeg enn virtur og vel fjáður embættismaður; nú er jeg vegna hennar orð- inn beiningamaður. Áttu ekki Marianne og móðir hennar að hafa komið auga á þetla? Áttu þær eigi að sporna við þessu íávíslega hjónabandi, sem jeg gekk út í sökum ástríðu- fulls ofstækis? Er jeg geng inn f hinn vesal- Iega bústað minn, þaðan, sem jeg brátt mun rekinn út á kaldan klaka ásamt fárveikri konu minni og hálfnöktu barni, sem verður að vinna baki brotnu um aldur fram, fyllist hugur minn æði og reiði til hennar, sem hefir komið mjer í þessa hræðilegu örbirgð. Hvað stoðar mig ást hennar, starfsemi hennar, fyrst hún hefir verið upphaf ógæfu minnar?* Strömberg sló hergöngulag á borðinu. Ahr- nell studdi olnbogunum á það og fól andlitið í höndum sjer, sokkinn niður í raunahugsanir. Báðir þögðu aillengi. Að lokum reis Ström- berg á fætur og mælti með kuldaglotti: sRannig fer það. Þessi kona, sem er lífs- böl þiít, í hverju er glæpur hennar fólginn? í því, að hún átti hjarta og að hún hlýddi rödd þess. Hún vonaði og treysti á mátt sinn til að vinna fyrir hann, sem hún unni, og verða sakir viðleitni sinnar þeirrar hamingju aðnjótandi að lifa honum, sem hún elskaði. Hún framkvæmdi fyllilega þá ætlun sína, að taka þátt í striti hans og örbirgð. Til þess að ná þessu takmarki ofþjakaði hún sjer; heilsa hénnar bilaði. Veikindi og þrautir urðu hlut- skifti hennar; vanþakklæti og ástleysi laun henn- ar. Heimurinn er jafnan sjálfum sjer likur og mennirnir verða jafnan viðbjóðslegar verur. Hvað hefir þjer hlotnast í lífinu, boðberi dygð- ar og starfsemi?* hjelt Strömberg áfram og lagði hönd sína á öxl Ahrnells. »F’ú hefir 'sannfærst um, að þú varst heimskingi, sem hjelst að þú kætnist áfram í heiminum með því, að fara eftir ströiigum frumsaunindum. Niðurstaðan verður samt jafnan hin sama, sú, að eigingirni vor rýrir hið sanna manngildi vort. Svo er einnig orðið um þig. Neyðin hefir gert þig að eigingjörnu varmenni, sem á morgun verður glæpamaður. Ress vegna er betra að byrja sem jeg, að vera eigi svo ráð- vandur að skorturinn geri mann að bófa, en grípa tækifærið, er það gefst, og þann hagn- að, sem því fylgir, og nota það til þess að verða sjálfum sjer ráðandi. Er maður hefir orðið slíkrar hamingju aðnjótandi, er hægt að vera sann-ráðvandur og framúrskarandi sam- viskusamur. En sleppum nú þessu umræðu- efni og snúum oklcur að störfum okkar. Hvar býr þú?«. »f Stóru Bændagötu 34.« »F*að er hábölvað.« Eftir nokkra umhugsun tók Strömberg upp veski sitt og bætti við: »Hjer eru peningar handa þjer fyrir mið- degisverði, en þú mátt eigi halda heim til þín- F*ar mátt þú eigi sjást framar. Jeg skal senda konu þinni nokkra fjárhæð, og er þú ert far- inn, verður sveitin eða góðgerðasemin að ann- ast um hana. Oengurðu að þessu?« »Mig fýsir eigi að snúa aftur til þess heim- kynnis, þar sem fátækt og eymd verður að eins á vegi mínum,« mælti Ahrnell. »En líklegt er, að þú sjáir aldrei framar konu þína og barn,« sagði Strömberg. »F*eim mun betra. Jeg hefi vissulega eigi Ijett þeiin lífið undanfarandi.« »Pú lofar þá að fara ekki heim að kveðja þau áður en þú ferð.« , »Já.« »Við hittumst þá aftur í kvöld,« sagði Ström- berg, kallaði á borðmærina, borgaði málsverð þeirra, yfirgaf Ahrnell og ljet hanr. einan um að tæma vínflöskuna, sem þegar var að minka drjúgum í.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.