Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Side 17

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Side 17
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 13 heilsu sína um aldur fram; þær mundu þá verða harla hamingjusamar og njóta lífsins í ríkum mæli. Slíka vökudrauma dreymdi Marianne og sætti sig við örlög sín. Hún leit jafnvel á burtför manns síns sem sönnun ástar hans til sín. Haun hafði elskað konu sína og barn svo heitt, að fátækt þeirra olli honum sársauka, hugsaði Marianne; sökum ástar á þeim hafði hann farið á braut, og hann vildi eigi baka þeim þá örðugleika, sem hann hlyti að sæta, til þess að afla þeim fjármuna. Auðæfi hinna snauðu eru venjulega þau, að ímyndunaraflið sýnir framtíðina í blómaskrúði, og að vonin hvíslar um sæluríkari kjör. VI. Meðan Marianne lá á sjúkrahúsinu, hjelt Gústavson áfram að gera við skófatnað fátækl- inganna gegn sanngjarnri borgun. Stína systir hans var sífelt nöldrandi og Karl var orðinn hugsjúkur og latur. Dag nokkurn, er Gústavson las í einu Stokk- hólmsblaðinu um rannsóknirnar viðvíkjandi morði Hengels, mælti Karl um leið og hann í hugsunarleysi setti hælbót á tána á skó: »Heldurðu, Níels, að þessi sjómaður hafi framið morðið?* »Vissulega held jeg það,« svaraði Gústavson og lagði blaðið frá sjer. íRað er eigi svo auðvelt að standast freistinguna fyrir fávísan, rjettan og sljettan háseta. Freistarinn ræðst einnig stundum á handiðnamann eins og mig, svo að í harðbakka slær og beita verður hörku- brögðum til þess að knýja hann á dyr. Þegar skilningurinn á því, hvað rjett er eða rangt, er eigi glöggur í meðvitund manns, getur farið svo, að samviskan fari aliar götur norður og niður. Verið getur, að hásetinn hafi eigi íhug- að málið vandlega og Ijet síðan okrarafauskinn fá það, sem hapn þurfti með. Þeim, sem illa breytir, farnast illa; þannig fer oftast. Vertu því á verði gegn slæmum hugsunum, því að þær geta af sjer illgerðir.* »En gerum nú ráð fyrir, að einhver annar hafi orðið Hengel að bana og að Anderson sje saklaus.« »Verið getur það,« svaraði Gústavson, »en enginn annar hefir sjest fara þaðan.« »Jeg ætla að segja þjer dálítið, Níels, en þú mátt eigi tala frekar um það, því jeg er eigi viss í minni sök.« »Jæja, láttu koma það, sem þú hefir að segja. Það verður eflaust heimska, því að þú ert aula- grey. En þú veitst, að jeg get þagað.« »Sjást mun, hve jeg dugi,« mælti Karl móðgaður. »Eigi sem skósmiður, dægurflugan þín,« hrópaði drynjandi rödd og jafnframt dundu ótal högg knýttrar handar á eyrum Karli. »Alít- ur þú, að festa beri hælbótina á tána, þrjótur- inn þinn?« bætti hin drynjandi rödd við og hverju orði fylgdi löðrungur. »Jeg skal kenna þjer að ónýta skóna mína; jeg skal refsa þjer svo, að þú verðir blár og blóðugur, af því að þú fremur tóm heimskupör, og aulinn hann bróðir minn lætur sjer lynda . . .« »Jæja, Stína, nóg er nú komið,« sagði Gúst- avson og greip handiegg systur sinnar sterku taki. »Láttu hann eiga sig og þú átt ekkert erindi hjer á vinnustofunni, því að ef þú ferð of langt, gæti vel farið svo, að úti væri um þolinmæði mína og þá . . .« »Gæti farið svo, að jeg færi þannig að,« æpti Stína og rak bróður sínum rokna löðrung. Gústavson slepti takinu um handlegg henn- ar, forviða á, að þessi kryplingur dirfðist að berja hann. Stína virtist furða sig á gerðum sínum, en í stað þess að iðrast, æstist hún enn meir og rjeðst á Karl með slíkri áfergju, að hann og stóll hans hrutu um koll. Stína hafði þrifið í hár hans, til þess að láta reiði sína bitna dug- lega á honum, en Gústavson tók svo sterklega í handlegg hennar, að hún varð að sleppa tök- um. Skaut hann henni síðan í einni svipan inn í herbergið við hliðina á vinnustofunni, en blót og formælingar flóðu af vörum Stínu. Hún fullyrti, að hann væri skrímsli í manns-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.