Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Side 35

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Side 35
NÝJAR KVÖLDÖVKUR. 31 leyfði, ætlaði hann að fara að vinna að litar- gerðinni. Brjefið var til föður hans, én innan í því var miði til Edithar. Hún fjekk hann samt eigi fyr en að ári liðnu, því að háskólakennar- inn gleymdi bæði að fá henni miðann og einn- ig að segja henni efni brjefs síns. Síðan liðu mörg ár án þess að nokkuð frjettist af Ric- hard. — — Karl var nú tvítugur að aldri, iðinn, reglu- samur, vinnugefinn og hæglátur. Ofurást sú, sem hann hafði á listinni, og þráin eftir að nema, gagntók huga hans, og hvísluðu honum í eyra, að hann yrði að fara út í heiminn, þar eð hann ekki gat fundið listagáfu sinni næga svölun heima fyrir. Hinn harðráði, viljasterki háskólakennari rjeði einn öllu um stefnu hans í listnáminu. Hann hafði ákveðið þá braut, sem Karl átti að halda, og vildi ekki láta víkja þar frá. Karl hafði mótmælalaust hlýtt forsjá hans meðan gáfur hans voru að þroskast. Hann var nú einn hinna merkustu og nýtustu námssveina og starfsmanna Schneiders. En háskólakennar- inn hafði enn eigi gert hann að lærisveini sín- um. Hann hafði um þriggja ára skeið fengið venjuleg laun, en með hann var farið sem dugandi starfsmann, en eigi sem væntanlegan listamann. Hann var eigi í veislum háskólakennarans sem lærisveinarnir, hafði ekki aðgang að bóka- safni hans og hjó ekki í marmara. Háskóla- kennarinn lagði þó kapp á, að hann lærði dráttlist. Við það fjekst hann mest fyrstu árin. Því næst tók hann að móta skraut, skera í trje og móta í leir. Frá byrjun átti Karl að verða ágætis skrautskeri og hinum mikla listamanni hafði aldrei komið til hugar, að skósmíða sveinn- inn hefði æðri köllun. »Land vort þarfnast listfengs skrautskera, og jeg ætla að gera hann að afbragðs dugandi starfsmanni í þeirri grein,« var háskólakennar- inn vanur að segja, og kensla og starf Karls miðað við þetta. Schneider gaf ekki gaum að því, að pilturinn hafði hæfileika til æðri starfs, af því að hann vildi ekki verða þess var. List- gáfa Karls var þess eðlis, að hún hlaut að knýja hann til að keppa eftir einhverju betra, en verndari hans hafði ákveðið honum. í tóm- stundum sínum gerði Karl margar frummyndir, sem báru vott um mikið andríki og óvenju- Iega hugmyndagnótt. Háskólakennarinn var vanur að segja, þá er myndir þessar báru fyrir augu hans: »Hann er óvenju miklum gáfum gæddur. Hann mun skara fram úr í iðn sinni.« Karl var aftur á móti svo hugfanginn af vinnu sinni, hugmyndum sínum og námi sínu, að hann gaf ekki neinn frekari gaum að þessu at- riði. Pegar lærisveinarnir sátu í veislum hjá há- skólakennaranum á sunnudögum, fór Karl heim til Níelsar og eyddi deginum við dráttlist og samræður, Starfsbreyting Karls hafði eigi breytt ást hans á bróður sínum eða gert hann dramb- saman á nokkurn hátt. Hann var Iátlaus og blátt áfram, eins og þegar hann var skósmíða- sveinn glaður, ánægður og sparsamur. Karl var í nánari kynnum við fjölskyldu háskólakennarans en nokkur lærisveinanna. Edith sýndi þeim að sönnu fulla kurteisi, en við Karl var hún vingjarnleg og var auð- sjeð, að hún Ijet sjer annara um hann en hina. Dvaldi hann oft á kvöldum hjá Edith og Syl- víu, þá er háskólakennarinn var ekki heima. Milli hinnar litlu stúlku og Karls myndaðist þannig innileg vinátta, sem átti rót sína að rekja til fyrstu komu Karls í hús háskólakenn- arans. Sylvía var frítt barn, og Karl þreyttist í fyrstu eigi á, að virða fyrir sjer andlit henn- ar, en þá er hann alt fyrsta árið hafði látið sjer nægja að skoða það, byrjaði hann næsta ár að draga það upp; og segja má, að Sylvía hafi verið fyrirmynd hans í dráttlist og lík- neskjagerð. Níels hafði aldrei á þessuin átta árum þurft að iðra þess, að hafa lálið Karl hætta skó- smíðinu. Fyrir Níels höfðu ár þessi verið fremur tilbreytingarlítil. Eina breytingin, sem á var orðin, var sú, að hann hafði meiri vinnu

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.