Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Page 43

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Page 43
NÝJAR KVÖLDVÓKUR. 39 »Gerða!« tók Richard upp eftir henni og greip um hönd hennar. »Ó, nú man jeg eftir fagureyga barninu, sem lofaði að gleyma mjer aldrei.« Gerða brosti og roðnaði. »Nú þekki jeg yður,« bætti Richard við og leit inn í augun fögru, sem iitu niður undan hinu djarflega augnaráði hans. »Hver heillarík örlög hafa flutt yður til Engiands og valdið því, að þjer eruð hinn fyrsti, sem hittið mig hjer. Þjer eruð víst eigi giftar?« »Jeg er í för með frú Strömberg sem skemíi- mær hennar og kenslukona barns hennar,« svaraði Gerða. »Rjer eruð þá vinnuhjú?* sagði Richard, slepti hönd hennar og ieit með raunasvip á hana og bætti svo við: »Mjer hefði verið það gleðiefni, ef því hefði eigi verið þannig farið.« »Vinnuhjú erum við öll að meira eða minna leyti,« svaraði Gerða djarflega, »en með starfi voru getum við orðið frjáls og óháð einhvern tíma. Jeg vænti að minsta kosti eftir þeim degi.« »Pjer eruð ung stúlka,« mælti Richard með meðaumkvunarbrosi. »Rjer öðlist að eins frjáls- ræði og sjálfstæði með því að giftast.« »Ef svo er, er jeg hrædd um, að mjer auðn- ist eigi að hljóta frjálsræði,« mælti Gerða. »Hafið þjer í hyggju að deyja ógiftar?« »Jeg ætla aldrei að giftast fyrir hagsmuna sakir.« »En af ást?« »Ástin er stundartilfinning og hæfir eigi vinnulýðnum. En ræðum eigi frekar þar um. Mig minnir, að þjer væruð að spyrja um hr. Smith. Jeg sje að hann kemur þarna eftir trjágöngunum.4 Gerða benti í þá átt, sem eldri Smith kom gangandi úr, og fór skyndilega burt af svöl- unum. Richard hjelt henni eigi eftir; hann leit hugs- andi á eftir henni og tautaði: »Jeg held að æskudraumar mínir sjeu að vakna á ný. En hvað hún er orðin fögnr. Samt eigum við ekkert sameiginlegt, Leiðir okkar verða að skilja, þótt þær hafi legið saman.« Richard Schneider gekk niður svalagangriðið og móti hr. Smith. Hann nefndi nafn sitt og var honum tekið með mestu virktum af hinum auðuga verksmiðjueiganda. Smith & Son, eigendur stórrar efnaverk- smiðju, höfðu ráðið hinn unga Schneider, sem var kunnur sökum hinnar frábæru þekkingar sinnar í efnafræði, til þess að stjórna hinni miklu verksmiðju, sem var í nágrenni sumar- bústaðarins. Richard var kominn til þess að taka við starfi sínu, sem var vel launað. Nokkrir dagar liðu þar til að frú Strömberg, er dvalið hafði í Lundúnum, kom heim aftur ásamt manni sínum. Strömberg hafði eigi verið í för með konu sinni, þá er hún ferðaðist til Englands. Hann var nýkominn til Lundúna; þangað hafði kona hans ferðast til að hitta hann. Gerða hafði eigi hitt Strömberg síðan daginn, sem hún tók við starfi sínu í fjölskyldu hans og hann fylgdi þeim til eimskipsins. Auðmaðurinn virtist nú eigi heldur gefa neinn gaum að fátæku sfúlkunni. Hann heils- aði að eins með lítilli hneigingu. Richard var þann dag böðinn þangað í miðdegisveislu. Hann heilsaði Gerðu ókunnuglega, en kurteis- lega; hún hafði eigi áður þekt óþægindi þau, sem eru samfara ófrjálsri stöðu á auðugu heimiii, en nú fór hún að verða þeirra vör. Frú Strömberg var ein þeirra kvenna, sem gædd var engilshjarta. Hún hafði þvi frá byrj- un sýnt Gerðu þá velvild, að unga stúlkan hafði gleymt því, að hún væri hjú. Smith eldri var einn þeirra, sem byrjað hafði með tvær hendur tómar, en var nú orð- inn miljónaeigandi. Hann var blátt áfram og öllum jafn. Eftir komu sína til Englands hafði frú Ström- berg að eins haft samneyti við föður sinn og kvæntan bróður, sem einnig bjuggu á Lislehæð. Um tveggja mánaða tíma hafði hún eigi farið úr húsi föður síns. Hún ferðaðist að eins til Lundúna tii þess að taka inóti manni

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.