Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Side 51

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Side 51
NÝJAR KVÖLDÖVKUR. 47 allri sálarró. Jeg þorði eigi að fallast á þetta, þar eð jeg óttaðist reiði föður míns, og jeg vildi eigi heldur scgja, að jeg þyldi eigi að vera borinn niður í vagninn. Bústýran útkljáði inálið með því að lýsa yfir því, að best væri að prófessorsfrúin færi með ungherrann heim með sjer. Vinnukonan hjálpaði mjer nú í fötin, síðan var jeg borinn niður í vagninn og Antonía fór með mig heim til föður míns. Hann var ekki heima. F*að var farið með mig upp á herbergi mitt og alt gert til þess að lina þjáningar mínar. Og jeg var svo eigingjarn, að jeg hugsaði að eins um sælukend þá, sem fylti hjarta mitt, en eigi uin afleiðingarnar af aðgerðum Antoníu. Hið fyrsta, sem vakti mig morguninn eftir, var rödd föður míns. Jeg lauk augunum upp. Hann stóð við rúm mitt og mælti: »En hvað þú ert aumlegur ásýndum. Ef jeg þekki rjett, þá er þetta þrjósku þinni að kenna, en af því að það er full harðleikið af hr. H.-berg að fara þannig með son prófess- ors Schneiders, þá ferðu frá honum; en fram- vegis mun þjer hollast, að brjóta eigi inóti vilja nn'num; annars muntu verra af hljóta.« Að svo búnu fór hann. Jeg fann, að jeg var fullur gremju til hans, en hún hvarf, þá er Antonía kom inn. Hún sat hjá mjer alt árdegið, ræddi við mig og las fyrir mig, blíð og broshýr eins og sólargeisli. Mjer batnaði bráðlega og komst þá að raun um, að faðir minn hafði orðið hamslaus af reiði, þá er hann frjetti, að Antonía hefði kom- ið heim með mig. Astúð hennar hafði samt varnað öllu ofbeldi. Hann hafði algerlega látið sefast, þá er Ant- onía lýsti yfir því, að henni hefði fundist móðgandi, að syni Schneiders háskólakennara var ofþyngt með störfum öðrum fremur. Pessi orð höfðu áhrif á hinn dratnbsama föður minn, svo að jeg losnaði frá hinum slæma karli. Þá er mjer var aiveg batnað, var jeg settur til náms í stærri litgerðarverksmiðju. Stjúpa mín borgaði fyrir mig, svo að jeg losnaði við alla erfiðisvinnu. Hún vgr næstu ár hinn frið- þægjandi engill, sem hjelt uppi friði milli okk- ar feðga og sætti mig við lífskjör mín. Áhrif- um þeirrar góðu og elskulegu konu á jeg að þakka það, sem jeg er. Eftir þetta sælutímabil kom hin þyngsta af öllum raunum mínum, þá er dauðinn svifti oss henni. Hún dó í blóma aldurs síns, að eins 21 árs að aldri. Dauði hennar var reiðarþruma, sem lamaði einnig hið tilfinningarsljóa hjarta föður míns, og ætlaði eyðileggja mig gersamlega. Mjer fanst jeg vera sem stjórnlaust fley, sem berst á hin- um trylda sæ. Mjer hafði skjátlast. Engillinn hafði, þá er hann breiddi út vængi sfna og sveif burt frá jarðlífinu, skilið mjer eftir tvent, sem mátti mjer til frelsunar verða frá glötun. Annað var minningin unt hana, sem varð mjer nokkurskonar leiðarstjarna um æfina; hitt var Edith, sem lækkaði ástríðuofsa minn með því að minna mig á, hvað Antonía hafði viljað leggja mikið í sölurnar til þess að þroska mig og göfga. Edith var að sönnu eigi jafningi Antoníu, en var gædd svo mörgum ágætum eiginleikum, að hún varð mjer ómetanleg vinkona. Hinn skarpi skilningur hennar, hin áreiðanlega dóm- greind hennar, skyldurækui og hreinleiki, ollu því, að hlýtt var með virðing á ráðleggingar hennar og vöktu vináttu og hlýju í brjóstum manna. Þá er jeg sá þig fyrsta sinni hjá Edith, fanst mjer se.ni jeg sæi í augum þínum skuggsjá af sál Antoníu. Það voru skæru, blíðu augun hennar, en úr þeim skein sakleysi og gæði barnsins. Nítján ára að aldri fór jeg frá Svíþjóð til Riga sem litgerðarnemi. Þú manst, að það var seint um haustið. Skipið, sem flutti mig frá Finnlandi til Riga, fórst, og mesta mildi var, að jeg bjargaðist. Jeg kom til Rigaborgar sjúkur og allslaus. Gamall vinur föðhr míris veitt.i mjer læknis- hjálp, og þá er jeg var orðinn hress, tók jeg

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.