Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Page 55

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Page 55
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 51 Bernhard hafði litið forvitnisaugum á Gerðu, og auðsætí var, að hann langaði til að vita nafn þessarar fríðu meyjar. F*á er staðið var upp frá borðum, gekk Bernhard til Strömbergs og spurði hann, hver þessi unga stúlka væri. »Kenslukona dóttur minnar,* svaraði hann og sneri sjer síðan að Gerðu, sem var í nánd og kynti hr. Bernhard ungfrú Gerðu Ahrnell. Pótt hinum síðarnefnda virtist eigi bregða við smámuni, varð honum sarnt kynlega við, að heyra nafn Gerðu. Hann hrökk saman, dökkur roði hljóp fram í andlit hans og eldur brann úr augum hans. Hann leit heiftaraugum til Strömbergs, hneigði sig fyrir Gerðu, sem kvíðafull hafði horft á hann, og fór því næst. Gerða fór burt úr borðstofunni og hraðaði sjer til herbergis síns. Hún fjekk eigi lengi að vera í næði, því að Strömberg kom inn til hennar. Gerða hafði ætíð verið hálf hrædd við hann, en hvers vegna, það vissi hún eigi. Þá er hún sá hann fyrsta sinni heima hjá móður sinni, var sem hvíslað væri að henni: »Gæt þín fyrir manni þessum.« Þá er hann stóð nú frammi fyrir henni, hvísl- aði sama viðvörunarröddin, að hún skyldi vera vel á verði, þótt hann væri nú blíður á svipinn. »Jeg vildi gjarnan spyrja yður eins, ungfrú Ahrnell,* mælti Strömberg og settist í legu- bekkinn, »en má jeg biðja yður að svara hrein- skilnislega?* »Því lofa jeg,« svaraði Gerða. »Mjer fanst þjer vera í æstu skapi við morg- unverðinn. Viljið þjer segja mjer, hvað olii þessari geðshræringu?« sagði Strömberg og ieit rannsakandi augum á hana. »Jeg vil komast hjá að segja það af því að jeg heid, að þjer vitið orsökina,* svaraði Gerða og leit niður. »Pjer hafið þekt hr. Bernhard?* »Mjer skjátlaðist þá eigi. Það er áreiðan- lega hann!« hrópaði Gerða. Augu hennar fyltust tárum og hún nötraði öll. »Yður hefir eigi skjátlast,« var alt, sem Strömberg svaraði, og hann vildi sjá áhrif þessara orða. Þeirra var eigi lengi að bíða. Gerða hneig niður á stól, fói andlitið í hönd- um sjér og tautaði: »Mamma, veslings mamma mín!« Hún sat síðan lengi þögul og agndofa. Strömberg sat einnig kyr og íhugaði þá hags- muni, sem hann hefði. Hann hafði gamla skólabróður sinn alveg á sínu valdi; hann hafði þá yiirburði yfir Gerðu, að heill og heiður föður hennar var í hans höndum og hann ætlaði að færa sjer það í nyt. Eftir langa þögn mælti hann: »Jeg vildi, ungfrú Gerða, að þjer væruð svo stiltar, að jeg gæti sagt yður ýmislegt viðvíkj- andi foreldrum yðar.« Gerða leit upp og spurði: »Hvað er það?« »í fyrsta lagi megið þjer aldrei láta móður yðar vita, að þjer hafið sjeð hann. Látið hana lifa við þann misskilning, sem veldur henni hamingju og látið hana deyja með traust á þeim eiginmanni, er brást henni. Það væri grimdarfult, að svifta hana því trausti.« »Hjarta mitt hefir einnig hvíslað mjer því ráði í eyra,« stamaði Gerða. »F*að vissi jeg, en jeg hefi' enn ýmsu við að bæta. F*jer þekkið eigi hr. Bernhard, en jeg þekki hann, og því segi jeg yður: hann má eigi fá að vita, að þjer þekkið hann. Hann elskar núverandi lífsstöðu sína of mikið og hatar hið liðna svo mjðg, að hann mundi neyta hverra bragða sem væru til þess að ryðja þeim rnanni úr vegi, sem væri honum hættu- legur.« »Hr. Strömberg,* mælti Gerða í angistar- róm, »gleymið eigi, að þjer talið um föður minn.« »Einmitt þess vegna er jeg eins vægur og unt er, en samviska mín skipar mjer að segja yður: Bernhard má eigi fá minsta grun um, að þjer hafið þekt hann.« »Ber hann þá enga hlýju í brjósti til dóttur 7*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.