Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Blaðsíða 76

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1921, Blaðsíða 76
NYJAR KVÖLDVÖKUR. 72 . illi samviskusemi er jeg þó gædd, að jeg vildi eklci eiga þann mann, sem hefir gert eins og Níels og eigi bætt fyrir það og það mun víst á löngu líða.« »Já, en Stína! Jeg er farin að halda, að saga yðar sje eigi sönn, og þá finst mjer jeg hafa breytt órjettilega. Stundum, er jeg horfi f hin sakleysislegu augu hans, verð jeg efa- söm, og jeg hugsa: Ef að Stína hefði nú logið að mjer! Hve miklum rangindum hefi jeg þá eigi beitt veslings Níels.« »Að jeg hafi logið?« æpti Stína og var grát- ur í rómnum. »Að jeg hafi borið bróður minn, sem jeg ann svo heitt, rógi. Og þjer segið þétta upp í opið geðið á mjer? Rað er of djúpt tekið í árinni.« Polinmæði Karls var nú nóg boðið og hann stappaði niður í gólfið. »Oóða Stína mín! Rjer megið ekki láta yð- ur fallast svona mikið um þetta,« mælti Lo- vísa. »En lítið þjer á. Skömmu eftir að Ní- els var orðinn meistari, sögðuð þjer mjer, að hann hefði eigi greitt ekkjunni skuldina. Rað varð til þess, að jeg fór að efast um orð yð- ar og ákvað, að grenslast nánar eftir þessu. Nú er Níels farinn að tortryggja mig af því að jeg hefi færst undan að halda brúðkaupið, og jeg vil eigi lengur láta við svo búið standa. Hann verður heldur að fá að vita, að jeg veit um afbrot hans, og að hann verði að bæta fyrir ranglæli sitt áður en jeg verði konan hans. Viljið þjer eigi leysa mig frá loforði mínu, svo að . . .« »Ætlið þjer að rjúfa það?« æpti Stína. »En áður en þjer fáið leyfi til þess, ætla jeg að kæfa yður.« »Nei, það skal eigi verða,« hrópaði Kari og hratt opnum herbergisdyrunum. Stína hafði ráðist á Lovísu, sem reyndi til að verjast. Rótt eldingu hefði slegið niður, þá hefði hún eigi valdið meiri -undrun en koma Karls. Stína starði heiptaraugum á bróð- ur sinn. »Hvaða læti eru þetta, Stína?« mælti Karl og gékk til hennar. »Retta verður þjer dýrt spl&g; þjer er óhætt að trúa, að jeg segi Ní- els alt saman, og gaman hefði jeg að vita, hvernig þú ferð að verja þig, þar eð þú hefir borið hann rógi.« »Dirfist þú að segja það?« sagði Stína og gekk að honum, en Karl þreif um báða hand- leggi hennar, hratt henni frá sjer og mælti: »Hættu að æpa og minstu þess, að jeg er kominn af drengjaárunum: Annars hefi jeg 'ekkert við þig saman að sælda, en ætla að tala nokkur orð við Lovísu f einrúmi.* Stína jós skammaryrðum yfir bróður sinn, en hann Ijet það eigi á sig fá, én tók Lovísu við hönd sjer og fór með hana inn í herbergi Níelsar og læsti á eftir þeim.* Stína varð æðisgengin og lamdi svo mjög hurðina, að sveinninn kom hlaupandi úr vinnu- stofunni og spurði hvað á gengi. »Stína er í slæmu skapi,« mælti Karl, og sveinninn fór með þau orð á vörum, að ef henni þætti skemtun að því að lemja á hurð- ina, þá gæti hann unt henni þess gamans. Loksins voru þau Karl og Lovísa ein sam- an. Hann bað hana nú að segja sjer alla sögu og fullvissaði hana kröftuglega um, að Níels væri hinn ráðvandasti og hefði aldrei gert sig sekan um neina óhæfu. Lovísa sagði því næst frá, að skömmu áð- ur eti Ntels hefði fyrsta sinni nefnt giftingu við sig, hefði Stína komið til sín döpur í bragði og sagt sjer, að viðlögðu þagnarheiti, að skipstjóri nokkur hefði fengið Níels í hend- ur allstóra fjárupphæð til frú Ahrnell, en Níels hafði að eins fengið ekkjunni nokkrar krónur. Hinu hefði hann stungið í sinn vasa og notað til ýmsra hluta. Stína kvaðst hafa ámælt hon- um fyrir þetta, og hefði hann þá lofað að endurborga ekkjunni peningana. Stína hafði nú beðið Lovísu að játast eigi Níels fyr en hann væri orðinn meistari og búinn að greiða skuldina, Kvað hún hann enn eigi'færan um, að sjá fyrir fjölskyldu. Mundi hann eigi geta borgað ekkjunni, ef hann giftist, og hafa þá sífelt samviskubit af þjófnaðinum. Lovísa var góð stúlka og göfuglynd og vlldi styðja Níels
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.