Fréttatíminn - 20.12.2013, Side 18
B itcoin er bara bóla. Snemma á næsta ári verður verðið, sem var um 1200 dollarar fyrir nokkrum
dögum, komið undir 10 dollara.
Þessu spáir Mark T. Williams, sér-
fræðingur í fjármálamörkuðum og
áhættustjórnun við Boston University
School of Management í Bandaríkjun-
um. Hann skrifaði grein á vef Business
Insiders á þriðjudag sem vakti talsverða
athygli á netinu en þar hvatti hann þátt-
takendur í bitcoin-æðinu til þess að inn-
leysa hagnað sinn hið fyrsta fyrsta því
endalokin væru í nánd fyrir bitcoin.
Blaðamaður Fréttatímans var við-
staddur Skype-fund um Bitcoin sem
Mark hélt fyrir félaga sína hjá hugbún-
aðarfyrirtækinu Gangverk í Reykjavík á
miðvikudaginn en Fréttatíminn fjallaði
ítarlega um bitcoin í síðustu viku.
„Það er ekki rétt að tala um rafrænan
gjaldmiðil í þessu sambandi. Bitcoin er
frekar rafrænn
varningur,“ seg-
ir Mark. Hann
er sér f róður
um eignabólur
og hefur meðal
annars gefið út
bók um þá lær-
dóma sem draga
megi af fall i
Lehman-banka
og hættuna á
að kerfisáhætta
verði fjármála-
kerfi heimsins
að falli.
Mark telur að
það ástand sem
skapast hefur
á bitcoin-markaðnum síðustu vikur og
mánuði beri öll einkenni þess að um
eignabólu sé að ræða. Undirliggjandi
sé að nýir fjárfestar streymi á markað-
inn af því að þeir hafi heyrt af gríðar-
legum hagnaði þeirra sem á undan fóru,
þetta veki öfund og löngun til að ná í
sneið af hagnaðinum. Slíkar sögur eru
á hverju strái. Fyrir nokkrum misserum
stóð verðið í þremur dollurum og var í
100 dollurum fyrr á þessu ári en náði
1200 dollurum áður en það fór að hríð-
falla í síðustu viku og stendur nú í um
600 dollurum. Þetta sé ágætt dæmi um
það sem kallað hefur verið „meira-fífls
kenningin“ (e. Greater fool theory) þar
sem kaupendur flykkjast á markaðinn
og kaupa vöru á fráleitu verði í trausti
þess að einhver annar verði tilbúinn til
að greiða enn hærra verð.
Hann bendir á að bitcoin hafi aldrei
gengið í gegnum svartsýnismarkað (e.
bear market) þar sem gjaldmiðillinn
hafi sannað gildi sitt við erfiðar efna-
hagslegar aðstæður. Mark telur engar
líkur á að bitcoin gæti staðist slíkt próf.
„Verið á eftir að halda áfram að falla,“
segir Mark og spáir því að á fyrri hluta
næsta árs verði það komið undir 10 doll-
ara.
Hann bendir á viðbrögð kínverskra
stjórnvalda sem nýlega stigu harkaleg
skref til að koma í veg fyrir að bitcoin sé
notað í viðskiptum. Fyrst bannaði kín-
verski seðlabankinn bönkum landsins
að skipta bitcoin fyrir annan gjaldmiðil
og síðar hefur greiðslumiðlunarfyrir-
tækjum verið bannað að eiga viðskipti
með bitcoin. Bitcoin hefur átt talsverð-
um vinsældum að fagna í Kína og Mark
segir ákveðið réttlæti í því að Kínverjar
sem ýttu í upphafi undir bitcoin bóluna
taki að sér að sprengja bóluna. Aðrar
ríkisstjórnir muni áreiðanlega fylgja í
kjölfarið fljótlega.
Mark segist hins vegar hafa trú á því
að hugmyndin um rafrænan gjaldmiðil
geti fyrr eða síðar orðið að veruleika
þótt bitcoin fatist flugið. Ein mistökin
sem aðstandendur bitcoin hafi gert hafi
verið að búa ekki til formlegt fyrirtæki
sem taki á sig lagalega og viðskiptalega
ábyrgð.
„Það voru tölvunördar sem bjuggu
bitcoin til í sýndarveruleikanum en
ætluðust til að þetta yrði nothæfur
gjaldmiðill í raunheimi,“ skrifar Mark
í greininni á Business Insider. Stofn-
endurnir séu ágætir í hugmyndafræði
frjálshyggjunnar en skilji illa hvernig
efnahagslíf heimsins virkar. Til þess að
rafeyrir geti virkað og þjónað tilgangi
í viðskiptum þurfi að búa raunveruleg
efnahagsstefna og peningastefna að
baki. „Það að gefa sér að gjaldmiðill
sé búinn til af tölvu án miðstýringar og
seðlabankakerfis er fáránlegt og efna-
hagslega hættulegt,“ segir hann.
Til þess að gjaldmiðill nái að ávinna
sér traust í viðskiptum manna þurfi að
vera til staðar trú á því að baki hans
standi fjármálakerfi með fjármálaeftir-
lit og seðlabanka sem starfi á grund-
velli peningastefnu sem haldi aftur af
verðbólgu og tryggi stöðugt verðlag.
Bitcoin falli á því prófi en aðrir rafrænir
gjaldmiðlar nái kannski að standast það
í framtíðinni.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Veit á vandaða lausn
GENSE kvörn
• Malar salt og pipar
• Keramikkvörn - píanólakk
• Þrír litir: svart, hvítt, rautt
Kr. 6.262,-
JÓL Í ELDHÚSIÐ
DUALIT brauðrist
• 2 brauðsneiðar
• Sérstaklega víð rauf f. brauð
• Hægt að rista beyglu / pítu
Kr. 32.944,-
DUALIT hraðsuðuketill
• 1.5L hraðsuðuketill
• Snúrulaus
• Sía innan á stút
Kr. 18.900,-
F
A
S
TU
S
_E
_4
6.
12
.1
3
Það eru komnir hraðbankar þar sem hægt er að hlaða inneign inn í android-síma en nú er framtíð fyrsta rafræna gjaldmiðilsins í mikilli
óvissu og verðið fellur hratt.
Orð Sigmundar
Davíðs í fréttum
RÚV á þriðju-
dagskvöld ollu
ótta hjá sumum
atvinnu-
lausum
sem töldu
að bóta-
greiðslum
yrði hætt.
Atvinnuleysi orð sigmundAr ollu óttA
Um 6,5 milljarðar
eru til í atvinnuleysis-
tryggingasjóði
e instaklingar á atvinnuleysis-bótum höfðu samband við ASÍ og verkalýðsfélögin eftir
að hafa hlustað á forsætisráðherra í
tíufréttum RÚV á þriðjudagskvöld.
Fólkið hélt að Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður væri tómur og hætt yrði
að greiða atvinnuleysisbætur.
ASÍ gaf frá sér yfirlýsingu af
þessu tilefni og vísar þar til eftirfar-
andi orða Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar þegar rætt var um des-
emberuppbót atvinnulausra: „Til
þess að það sé hægt þurfa að vera
til peningar í sjóðnum. Það var ekki
núna. Raunar er sjóðurinn þegar
kominn í töluverðan mínus þannig
að ráðherra hafði ekki fjármuni til
að greiða út.“ Ráðherrann
bætti því við að hins veg-
ar hefði tekist að finna
fé til að greiða út des-
emberuppbótina.
„Margir atvinnu-
leitendur ha fa
skilið orð forsæt-
isráðherra þann-
ig að greiðsla at-
vinnuleysisbóta á
nýju ári sé í uppnámi enda fullyrti
Sigmundur Davíð að engir pening-
ar væru til í Atvinnuleysistrygg-
ingasjóði,“ segir ASÍ. „Í tilefni af
framangreindum orðum forsætis-
ráðherra er rétt að fram komi að
Vinnumálastofnun áætlar að eignir
Atvinnuleysistryggingasjóðs um
næstu áramót verði á bilinu 6,3 til
6,5 milljarðar króna. Þar til við-
bótar er rétt að árétta að greiðslur
atvinnuleysisbóta byggja á lögum
um það efni og eru allar
breytingar háðar laga-
breytingum, en ekki
stöðu Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs.“
Bitcoin BólAn virðist verA Að springA og verð hefur lækkAð um helming á einni viku
Spáir því að bitcoin seljist á 10 dollara eftir áramót
Mark T. Williams
er kennari við
Boston-háskóla
og sérfræðingur
í fjármálamörk-
uðum. Hann
skrifaði grein um
bitcoin sem vakti
mikla athygli á
vefnum og hélt
fund um þennan
rafeyri á Skype
fyrir félaga sína
í Reykjavík.
Fréttatíminn
fylgdist með.
Mark T. Williams.
18 fréttir Helgin 20.-22. desember 2013