Fréttatíminn - 20.12.2013, Qupperneq 32
G
uðjón Davíð Karls-
son, sá fjallbratti Gói í
Stundinni okkar, sendi
nýlega frá sér barna-
bókina Jólaandinn sem
hann fékk Karl biskup Sigurbjörns-
son, föður sinn, til þess að mynd-
skreyta. Gói hefur ekki farið mjög
hátt í jólabókaflóðinu enda önnum
kafinn í ýmsum hornum. Hann hefur
slegið í gegn með Stundinni okkar í
Sjónvarpinu í vetur og leikur sótarann
í söngleiknum Mary Poppins sem enn
er sýndur fyrir fullu húsi í Borgar-
leikhúsinu við fádæma vinsældir.
„Þetta hefur verið alveg ótrúlegt
og gengið betur en nokkur þorði
að vona,“ segir Gói og bætir við að
vissulega sé það lúxusvandamál
þegar endalaust þurfi að bæta við
sýningum til að anna eftirspurn.
Og þræðirnir liggja í Borgar-
leikhúsið þegar andi jólanna er
annars vegar vegna þess að þar
varð grunnur sögunnar til.
„Forsagan er eiginlega sú að
við gerðum litla sögustund, ég
og Þröstur Leó vinur minn,
í Borgarleikhúsinu í fyrra.
Okkur fannst vanta ein-
hverja svona litla aðventu
fjölskyldusýningu og þegar
við ákváðum að bæta úr því
vantaði sögu.
Hugmyndin að Jólaand-
anum var eitthvað búin
að gerjast í mér þannig að
ég ákvað að koma henni
frá mér á einhvern hátt
þarna og þar varð eiginlega
grunnurinn að þessari sögu til.“
Eftir að sýningum lauk fannst Góa hann
mega til með að gera eitthvað meira úr
efniviðnum. „Það er ekki bara hægt
að vera endalaust í leikhúsinu og mig
langaði að prófa eitthvað nýtt, annað
listform. Ég ákvað því að fara að skrifa
og þetta fór svo í gegnum nokkra
þvotta og síur eins og gengur og svo
var bara farið í að reyna að koma þessu
út.
Og hér er hún sem mér finnst mjög
skemmtilegt vegna þess að ég hef ekk-
ert verið að skrifa svona áður. Ég hef
mest verið að skrifa þessar barnasýn-
ingar, Eldfærin og Baunagrasið, með
Þresti Leó. Um þetta leyti, síðasta vor, var
ég líka byrjaður að skrifa fyrir Stundina
okkar, þannig að maður var kominn
svolítið í skrifgírinn.“
Gói segir vinnuna við bókina
hafa verið mjög skemmtilega
og hann gæti vel hugsað sér að
skrifa meira á þessum nótum.
„Mér finnst mjög gott að
hafa mörg mismunandi járn
í eldinum. Ég hef verið að
dúlla mér eitthvað í músík
og finnst voða gott að geta
sveiflast svona á milli. Ég
lærði á píanó á sínum tíma
og gutlast eitthvað á því
og syng líka.“
Krassað og párað
Gói segir aðspurður að
það hafi ekki komið
neitt annað til greina
en að fá Karl, föður
Framhald á næstu opnu
32 viðtal Helgin 20.-22. desember 2013