Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.12.2013, Page 50

Fréttatíminn - 20.12.2013, Page 50
til að menn gefi eina handfylli af korni á hvert tonn sem þeir selja, til þess að hjálpa fátækum mönnum. En allir hristu höfuðið og svo er bara hlegið. Annar maður vill telja allt fram og leggja sitt til samfélagsins en, ekki fyrir sjálfan sig heldur fyrir hina, og er fyrir vikið bara talinn geðveikur. Mér finnst við, í dag á Íslandi, geta fundið okkur í verkinu. En ég vil ekki hrista okkur með þessu verki heldur faðma okkur. Ég vil að við horfum hlýlega á sjálf okkur í gegnum verkið og sjáum að við erum ennþá að glíma við sömu hugmyndir og alltaf, frelsi ein- staklingsins og hagsmuni almennings. Hvenær gengur ríkið of langt og hvenær gengur það of skammt?“ Auðvaldið er stóra ógnin „Við erum breyskar verur sem þurfum að glíma við þingræði og það getur verið jafn erfitt og hjónabandið. Stóra ógnin gagn- vart þingræðinu og lýðræðinu er auðvaldið. Það sjáum við allsstaðar í kringum okkur og getum tekið Ameríku sem dæmi. Það er ríki sem glímir alltaf við togstreituna milli lýðræðis og auðvaldsins sem hefur svo mikil völd. Þetta er líka slagur okkar hérna í okkar litla lýðræðisríki. Við eigum okkar auðlindir og það eru stórir auðugir aðilar sem vilja fá að dansa með okkur og við getum verið svo varnarlaus gagnvart því. Þar frekar en annarsstaðar gæti verið þörf á borgaralegri uppreisn, í þeim tilfellum þegar auðvaldið rænir lýðræðinu.“ Benedikt hitnar í hamsi þegar talið berst að umhverfispólitík og biður mig vinsamleg- ast um að skipta um umræðuefni til að koma í veg fyrir ofbeldishneigð en klykkir út með því að við ættum að taka okkur Mandela til fyrirmyndar í umhverfisbaráttunni. Listin víkkar sýnina En hvernig er það, vildi Plató ekki aukið aðhald gagnvart listamönnum? „Jú, því ríki þar sem ríkir samkomulag um eitt gildis- mat þarf að fylgjast vel með sagnamönn- unum og passa upp á þá. Hómer getur til dæmis verið hættulegur ríkinu því hann segir sorglegar sögur af dauðanum og framhaldslífinu í heljarheimi en það gæti hrætt hermennina. Þetta er allt enn nálægt okkur í dag. Við pössum til dæmis upp á það hvað börnin okkar sjá á internetinu því þar eru sagnamenn sem við viljum kannski ekki að tali til þeirra. Þetta er grundvall- arhugmynd sem gengur enn upp í dag en getur auðvitað verið stórhættuleg.“ Í gríska leikhúsinu gat lýðurinn speglað sig í vangaveltum skáldanna og brotið samtímann til mergjar með hjálp heim- spekinnar og listarinnar. En leikhúsið var líka staður ádeilunnar og Aristófanes var einn sá skæðasti þegar kom að því að deila á samtímann. Er þetta eitt af hlutverkum listamanna, að halda stjórnmálamönnum á tánum? „Ég held að það sé eitt af mörgum hlut- verkum listamanna. Það eru ákveðnir lista- menn sem taka það að sér, en það er erfitt að fullyrða um listamenn því listamenn eru af svo ólíkum toga og veiða svo ólíka fiska,“ segir Benedikt. „Annars finnst mér alveg merkilegt með hana Kristínu Gunnlaugs- dóttur og myndlistarsýninguna hennar með píkunum í listasafninu, því vááá hvað það er mikilvægt. Það að hún geri altaris- töflu úr píkunni og lyfti henni svona upp, þessu líffæri sem er bæði fæðingarvegur- inn, uppspretta lífsins og svo mikillar gleði en líka svo mikillar sorgar. Það beinist svo mikið ofbeldi að píkunni og mér finnst hún svo gott dæmi um listamann sem tekur einhvern hlut, lyftir honum upp og býr til nýjan fókus. Hún gerir altaristöflu úr þessu efni. Þetta er mikilvægt. Og að Listasafn Íslands skuli sýna þetta í sínum fínu sölum, efni sem má ekki sýna á mörgum stöðum í heiminum, hefur áhrif á gildismat okkar. Nákvæmlega eins og þegar Kjarval fór að mála grjót og mosa þá fóru góðborgararnir að segja; já! þetta er líka fallegt. Þetta er gott dæmi um listamann sem fjallar um grundvallargildismat, tabú sem er lyft upp og fyrir vikið fáum við víðari sýn. Það þarf enginn stjórnmálamaður að vera hræddur við þetta, en þetta er jafnmikilvægt og það er hættulegt, og næstum því hættulegra en leikhúspípið mitt,“ segir Benedikt. Dónaskapur, klám og pólitík um jólin Aristófanes tryllti gríska lýðinn úr hlátri löngu fyrir Krist og hefur verið kallaður faðir kómedíunnar. Mega áhorfendur búast við því að geta létt lundina í leikhúsinu þrátt fyrir stórar áleitnar spurningar? „Já, vonandi. Því við tökum á grund- vallarspurningum á gleðilegan hátt og svo er auðvitað fullt af dónaskap þarna líka sem er alltaf hressandi. Þetta er nátt- úrlega skrifað fyrir daga smekksins svo það er mjög mikið um smekklausa hluti, sem eru hreinlega ekki við hæfi, og munu bara verða Þjóðleikhúsinu til skammar. En vegna þess að brandararnir eru svo gamlir þá geta menn ekki sagt neitt við því. Ari- stófanes væri allavega með blóðug hnén vegna allra afsökunarbeiðnanna ef hann væri uppi í dag. Hann er einn mest kvótaði fornaldarhöfundurinn út af dónaskapnum og kláminu. Þú finnur hvergi jafn mikið af klámfengnum orðatiltækjum eins í leik- ritum hans og kannski er það þess vegna sem verkin hafa varðveist svona vel. Þýðing Kristjáns Árnasonar færir þetta til okkar á frábæran hátt og svo má segja að þetta sé söngleikur. Egill Ólafsson semur alla tónlist sem er þó nokkur og danshöfundurinn Steinunn Ketilsdóttir semur dansa kórsins. Þetta verður svona dansandi dónaskapur. Fólk má allavega búast við dónaskap, klámi og pólitík. Því það er svo jólalegt.” Óljós framtíð vegna niðurskurðar Benedikt stefnir á að halda ótrauður áfram í kvikmyndagerð. Hann mun fylgja sinni fyrstu kvikmynd, Hross í oss, eftir auk þess að vera kominn vel á veg með undirbúning næsta verkefnis. Næsta kvikmynd Benedikts mun tengj- ast konum. „Já, það verður saga af mönn- um og konum, „Kona í oss“ væri kannski hægt að kalla hana.“ Hann verður þó myrkur í máli þegar talið berst að henni. „Ég stefndi að því að byrja á henni í sumar en úr því verður ekki vegna niður- skurðar til Kvikmyndamiðstöðvarinnar. Það er enginn að fara að gera kvikmynd á næsta ári sem ekki þegar hefur fengið vilyrði frá sjóðnum. Þrátt fyrir að vera í slíkri stöðu að erlendir sjóðir vilji styrkja mig og vera meðframleiðendur, þá geri ég ekkert án fyrsta kubbsins í dómínó- spilinu, það er að segja Kvikmyndamið- stöðvar Íslands. Þannig að ég er bara kominn í biðröð, eins og svo margir aðrir kvikmyndagerðarmenn á Íslandi, og veit ekki hvernig það endar.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Benedikt Erlingsson leikstjóri: Þetta er náttúrlega skrifað fyrir daga smekksins. Við erum breyskar verur sem þurfum að glíma við þing- ræði og það getur verið jafn erfitt og hjóna- bandið. Stóra ógnin gagnvart þing- ræðinu og lýðræðinu er auð- valdið. 50 viðtal Helgin 20.-22. desember 2013
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.