Fréttatíminn - 20.12.2013, Side 96
96 matur & vín Helgin 20.-22. desember 2013
vín vikunnar
Stella Artois
Gerð: Bjór
Tegund: Lagerbjór.
Uppruni: Belgía.
Styrkleiki: 5%
Verð í Vínbúð-
unum: 819 kr. (750
ml)
Umsögn: Stella
Artois er hinn upp-
runalegi jólabjór
og vísar Stella í
sjálfa jólastjörnuna.
Bjórinn varð hins
vegar svo vinsæll
að hann varð
almenn neysluvara.
Undanfarin ár hefur
Stella komið hingað
í jólabúningi og
hentar einkar vel
að setjast niður
í hádegisverð á
aðfangadag með
jólasíld, gott rúg-
brauð og hátíðar-
flösku af Stellu.
Montes
Late Harvest
Gerð: Sætvín.
Þrúga: Gewurzt-
raminer.
Uppruni: Chile.
Styrkleiki: 12%
Verð í Vínbúð-
unum: 1.999 kr.
(375 ml)
Umsögn:
Þrúgurnar fá að
fullþroskast og
jafnvel aðeins meira
en það. Bragðið
inniheldur apríkósu
og hunang en líka
næga sýru þannig
að vínið nær ekki
að verða klígjulegt.
Fullkominn eftir-
réttur.
Aalborg Jubi-
læums Akvavit
Gerð: Snafs.
Uppruni: Danmörk.
Styrkleiki: 40%
Verð í Vínbúð-
unum: 5.899 kr.
(750 ml)
Umsögn: Íslenski
brennivínssnafsinn
er í raun ákavíti sem
sækir fyrirmynd
sína til Norður-
landanna. Þar
hefur hið danska
Aalborg Julilæums
Akvavit borið
höfuð og herðar
yfir aðra snafsa.
Bragðið er mjúkt
og kryddað með
þægilegum, heitum
eftirkeimi. Þetta
ætti ekki að vanta í
neina skötuveislu á
Þorláksmessu.
Sætur punktur yfir i-ið
Fólki hættir til að gleyma því hversu gott sætvín getur gert góða máltíð
betri. Gott sætvín með eftirréttinum, eða einfaldlega sem eftirréttur,
setur oft punktinn fullkomlega yfir i-ið.
Er þá átt við hefðbundin sætvín þar sem
þrúgan hefur fengið að þroskast að fullu og
jafnvel lengur en góðu hófi gegnir, þannig
að sykurmagnið í þrúgunni skilar einungis
sætvíni.
Þetta Oremus Tokaji sætvín hefur karakter
sem skín í gegn. Það hentar vel með alls
konar eftirréttum, til að mynda þeim sem
innihalda jarðarber, en ekki síður með ostum og
ostakökum. Tilvalið væri að sötra þetta sætvín eftir jólamatinn en prófa
svo afganginn af flöskunni síðar með góðum ostum.
Oremus Tokaji Aszu 3 Puttonyos
Gerð: Sætvín.
Þrúga: Tokaji-blanda.
Uppruni: Ungverjaland.
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúðunum: 4.475 kr. (500 ml)
Undir 2.000 kr. 2.000-4.000 kr. Yfir 4.000 kr.
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Fréttatíminn mælir með
Réttur vikunnar
Kaffikokteillinn Irish Coffee varð til á
dögum flugbátanna. Eðli málsins sam-
kvæmt lentu flugbátarnir á sjónum og svo
þurfti að ferja farþegana með bátum í land
og sú ferð var oft á tíðum köld og blaut.
Sagan segir að kokteillinn hafi í fyrsta sinn
verið blandaður eitt kalt vetrarkvöld árið
1940 þegar farþegar með Pan Am flugbáti
lentu í Foyneshöfn við strendur Írlands. Til
að koma hita í kropp farþeganna eftir báts-
ferðina ákvað barþjónn flughafnarinnar,
Joseph Sheridan, að að setja viskí út í
kaffið. Þegar hann var svo spurður hvort
kaffið væri „Brazilian Coffee“ svaraði hann
að bragði; nei, þetta er „Irish Coffee“ og
nafnið var komið. Hann hitti naglann á
höfuðið blessaður því fátt er betra á köldu
vetrarkvöldi en funheitur Irish Coffee.
Hráefni
1 msk dökkur muscavadi sykur (óunninn
púðursykur) eða annar dökkur sykur
30 ml Jameson írskt viskí
Bragðmikið og vel fyllt kaffi, helst
pressukönnukaffi
Létthristur rjómi
Alvöru Irish Coffee
Aðferð
1. Búið til einfalt sykursíróp úr sykr-
inum með því að sjóða hann í smá
vatni. Blandið saman sykursírópinu og
viskíinu.
2. Fyllið upp með kaffi og skiljið eftir
um það bil þumlung fyrir rjómann.
3. Hrærið öllu saman
4. Hristið rjómann í hristara. Athugið
að rjóminn á að vera mjög létt þeyttur
og leka vel.
5. Þetta er lykilatriði. Hellið rjómanum
yfir öfuga skeið og látið hann fljóta ofan
á drykknum. Það er gríðarlega mikil-
vægt að rjóminn sé ekki þeyttur, bara
létt hristur. Rjóminn á að fljóta ofan á
allan tímann svo það komi rétt magn af
drykk og rjóma við hvern sopa.
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P I S
Gleðileg jól
Kryddin frá Pottagöldrum
eru ómissandi í matreiðsluna
Ilmur af jólum
Nauðsyn um jólin
ÁN AUKAEFNA • ÁN MSG • ÁN SÍLÍKON DÍOXÍÐS