Fréttatíminn - 20.12.2013, Page 98
Villibráð
Íslensk villibráð er oft
bragðmild, þ.e.a.s kjötið sjálft,
en með henni er iðulega borið
fram sætt og bragðmikið með-
læti. Þess vegna, frekar en með
öðru, er ekki alveg hvað sem
er sem gengur með. Vínið þarf
að þarf að hafa tannín en
ekki of mikil, góðan, ríkan
ávöxt og krydd. Ég vil
því mæla með víni sem
hefur einmitt alla þessa
eiginleika.
Vajra Langhe Nebbiolo
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Ítalía.
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum:
3.695 kr. (750 ml)
98 matur & vín Helgin 20.-22. desember 2013
Drekktu þetta með jólamatnum!
Nú eru jólaveislurnar
framundan og á flestum
heimilum er farið að huga
að eldamennskunni. Ekki
er ráð nema í tíma sé tekið
með að velja réttu vínin
með veislumatnum. Frétta-
tíminn leitaði til Ólafs Arnar
Ólafssonar, veitingamanns
á K-Bar og mikils fagurkera,
og fékk hann til að mæla
með góðum vínum með ís-
lenska jólamatnum.
Annað sem gengur vel með Villibráð:
T.d. Cotes de Rhone vín, rauð Bourgogne
vín eða rauðvín frá Priorat í Katalóníu.
Perrin & Fils
Cotes du Rhone
Villages
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Frakkland.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.495 kr. (750 ml)
Laurent Miquel l'Artisan
Languedoc rautt
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Frakkland.
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúð-
unum: 2.299 kr.
(750 ml)
Fjallalambið fagra á sér
félaga sem mér finnst alltaf
passa vel með og það er vín
frá Rioja. Annað hvort vegna
þess að bragðlaukar landans
eru vanir Rioja vínum,
vegna þess að lengi voru
þau mest seldu vínin í
ríkinu, eða vegna þess
að eiginleikar kjötsins
og vínsins henta hvorir
öðrum.
Roda 1 Reserva
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Spánn.
Styrkleiki: 14,5%
Verð í Vínbúðunum:
7.998 kr. (750 ml)
Annað sem gengur vel með lambinu:
Næstum hvaða Rioja vín sem er. Pinot
noir frá Nýja Sjálandi eða Kaliforníu eða
Brunello di Montalchino frá Piemonte.
Banfi Brunello
di Montalcino
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Ítalía.
Styrkleiki: 14,5%
Verð í Vínbúðunum:
5.898 kr. (750 ml)
Domaine Drouhin Willa-
mette Valley Pinot Noir
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Bandaríkin
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúð-
unum: 6.298 kr.
(750 ml)
lamb
Hangikjöt
Á sama hátt og hamborgarhryggur kallar á
sætu í þeim drykk sem drukkinn er með hon-
um gerir hangikjöt það líka og jafnvel meira
ef eitthvað er. Það er því engin tilviljun
að mörgum finnst best að drekka Malt og
Appelsín með hangikjöti. Sérstaklega
getur verið snúið að finna vín með
taðreyktu kjöti því sterkt reykbragðið
getur auðveldlega kaffært einfaldari
vín. Ég legg til styrkt vín sem er aðeins
"oxiderað" með frekar háu áfengishlut-
falli til að dansa við hið mikilfenglega
taðreyk.
Pujol Rivesaltes Grenat
Gerð: Styrkt rauðvín.
Uppruni: Frakkland.
Styrkleiki: 15,5%
Verð í Vínbúðunum:
3.695 kr. (750 ml)
Annað sem gengur vel með hangikjötinu:
Góður bjór á borð við Leffe Blonde, rauðvín með
sætu, s.s. Amarone eða Ripasso. Þýsk riesling, Pinot
gris eða Gewurstraminer frá Alsace
Willm Pinot Gris Reserve
Gerð: Hvítvín.
Uppruni: Frakkland.
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúðunum:
2.750 kr. (750 ml)
Leffe Blonde
Gerð: Bjór.
Uppruni: Belgía.
Styrkleiki: 6,6%
Verð í Vínbúðunum:
469 kr. (330 ml)
Kjöt af rjúpum er dökkt, fínlegt og mjög
bragmikið og vegna þess að rjúpan safnar
kryddjurtum í sarpinn, bókstaflega, er
mikið lyng- og jurtabragð af kjötinu. Þess
vegna þarf rjúpa kraftmikið og höfugt vín,
jafnvel dálítið vel við aldur. Það þarf að
ýta undir kryddbragðið úr kjötinu og
ráða vel við kraftmikið kjötið svo það
þarf að vera frekar tannínríkt. Ég
legg til vín frá Líbanon sem er þungt,
mikið og kryddað.
Chateau Musar
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Líbanon.
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum:
5.199 kr. (750 ml)
Annað sem gengur vel með rúpunni: Eldri Bor-
deaux-vín, argentísk Malbec-vín, vín frá Rhone eins
og Hermitage t.d. eða Pinotage frá Suður Afríku.
Catena Malbec
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Argentína.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.948 kr. (750 ml)
Chateau Tour de Capet
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Frakkland.
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum:
3.698 kr. (750 ml)
rjúpa
graflax
Graflax er vinsæll forréttur á
jólum og það getur verið snúið
að finna vín sem passar. Það
þarf að vera sýruríkt til að skera
í gegnum feitan fiskinn, með
sætum ávexti sem ræður við
sæta sósuna og mineralskt til
að draga fram eiginleikana í
dillinu, sem er yfirleitt kryddið
á graflaxi.
Brundlmayer Gruner
Veltliner Kamptaler
Terrassen
Gerð: Hvítvín.
Uppruni: Austurríki.
Styrkleiki: 12,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.990 kr. (750 ml)
Annað sem gengur vel með graflaxinum:
Nýjaheims Riesling, t.d. frá Nýja Sjálandi
eða Ástralíu. Eða þurrt freyðivín eins og gott
Prósecco eða þurrt sérrí eins og Tio Pepe
Piccini Prosecco
Gerð: Freyðivín.
Uppruni: Ítalía.
Styrkleiki: 11%
Verð í Vínbúð-
unum: 1.999 kr.
(750 ml)
Gonzalez Byass
Tio Pepe Fino
Gerð: Sérrí.
Uppruni: Spánn.
Styrkleiki: 15%
Verð í
Vínbúðunum:
3.599 kr. (750 ml)
Það hefur verið algengt upp á síðkastið að
mæla með sætu hvítvíni með hamborgar-
hryggnum og það er gott og gilt enda passar
það vel saman. Það sem þarf að leita að í víni
með hamborgarhrygg er dálítil sæta til að vega
upp á móti öllu saltinu, sem er í hryggnum
sjálfum, og passar líka með meðlætinu, sem
er yfirleitt sætt líka. Ég vil þó mæla með
rauðvíni, sem er líka með talsverðri sætu,
sem ræður bæði við saltið og sykurinn í
matnum.
Tommasi Amarone della Valpoli-
cella Classico
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Ítalía.
Styrkleiki: 15%
Verð í Vínbúðunum:
6.399 kr. (750 ml)
Annað sem gengur vel með hamborgarhryggnum:
Þýsk Riesling-vín, t.d. Spätlese, Pinot gris eða Gewurs-
traminer frá Alsace, Demi sec kampavín, hálf sæt rósavín
eða ítölsk Ripasso ef fólk kýs frekar rauðvín.
Codorniu Clasico
Semi Sec
Gerð: Freyðivín.
Uppruni: Spánn.
Styrkleiki: 11,5%
Verð í Vínbúðunum:
1.999 kr. (750 ml)
Rene Mure Pinot
Gris Signature
Gerð: Hvítvín.
Uppruni: Frakkland.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vín búðunum:
2.399 kr.
HamborgarHryggur
Óli
mælir
með
Óli
mælir
með
Óli
mælir
með
Óli
mælir
með
Óli
mælir
með
Óli
mælir
með
(J)Óli á K-Bar
Jólaskapið kom fyrir löngu. Það er bara búið að vera svo mikið að gera í vinnunni,“ segir Ólafur Örn
Ólafsson, veitingamaður á K-Bar.
Óli er fyrrverandi formaður Vínþjóna-
samtaka Íslands og einn dómara í sjón-
varpsþættinum Masterchef Ísland. Hann
tók vel í það að deila visku sinni með
lesendum Fréttatímans og velja réttu
vínin með jólamatnum.
„Ég verð með gæs í jólamatinn sjálfur
í ár. Það er mismunandi ár frá ári hvað
ég er með en í ár er það gæs. Svo verður
humar í forrétt og ætli ég verði ekki
með sérrí-truffle frá mömmu í eftirrétt,“
segir Óli.
Hann nýtur þess að borða um jólin.
„Hjá mér er alltaf tími óhófs en um jólin
fær maður tækifæri til þess án þess að
vera litinn hornauga,“ segir hann og
hlær.
Og Óli sér fyrir sér notalegar stundir
við undirbúning jólaveislunnar. „Ég er
nú svo undarlegur með það að þegar
ég á frí finnst mér skemmtilegast að
vera heilu og hálfu dagana í eldhúsinu
að dunda mér eitthvað. Á aðfangadag
fáum við alltaf gesti eftir hádegið sem
þiggja hjá okkur púrtvín og piparkökur
með gráðaosti og á meðan er maður að
stússast í eldhúsinu.“