Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.12.2013, Page 104

Fréttatíminn - 20.12.2013, Page 104
104 skák og bridge Helgin 20.-22. desember 2013  Skák Hvert jólaSkákmótið rekur annað Skákin blómstrar á aðventunni j ólapakkaskákmót GM Hellis verður haldið á morgun, laugardaginn 21. desember í Ráðhúsi Reykja- víkur. Mótið hefst klukkan 13 og er ókeypis á það. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 16. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins. Keppt verður í fimm flokkum: Flokki fæddra 1998-2000, flokki fæddra 2001-2002, flokki fæddra 2003-2004 og flokki fæddra 2005 og síðar og peðaskák fyrir þau yngstu (2007 og yngri). Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldurs- flokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happ- drætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig og sameig- inlegt happdrætti í lokin þar sem m.a. verður dregin út spjaldtölva frá Heimilistækjum og allir þátt- takendur verða leystir út með góðgæti frá Góu og Andrésblaði. Meðal þeirra fyrirtækja sem leggja til gjafir í jólapakkana eru: Myndform, Salka útgáfa, Sögur útgáfa, Edda útgáfa, Speedo, Nor- dic Games, Ferill verkfræðistofa, Veröld útgáfa, Bókabeitan útgáfa, Góa, Heimilistæki, Landsbankinn og Skákskóli Íslands og Skák- félagið GM Hellir. Keppendur eru hvattir til að skrá sig til leiks á skak.is. Jóla- pakkamótið er tvímælalaust einn af hápunktum ársins, og er fólk hvatt til að kíkja við í Ráðhúsinu og fylgjast með hinum ungu snill- ingum. Hjörvar Steinn Víkingameistari Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson sigraði á Meistara- móti Víkingaklúbbsins í hraðskák sem fram fór í Víkinni í miðviku- dagskvöldið 17. desember. Annar varð Oliver Aron Jóhannesson með 6.5 vinninga, en í næstu sætum komu þeir Vignir Vatnar Stefánsson, Björn Þorfinnsson og Gunnar Fr. Rúnarsson með 6. vinninga. Mótið var fjölmennt og sterkt. 26 keppendur tóku þátt í mótinu og er þetta að öllum líkindum fjölmennasta fullorðins- skákmót sem haldið hefur verið í Víkinni. Róbert Lagerman á sigurbraut Róbert Lagerman, sem á dögun- um sigraði á jólaskákmóti Vinas- kákfélagsins, endurtók leikinn þegar KR-ingar blésu til jólamóts á mánudaginn. Róbert vann sann- færandi sigur, hlaut 12 vinninga af 13 mögulegum. Björgvin Víg- lundsson varð í öðru sæti með 10.5 v. og Vignir Vatnar Stefáns- son varð þriðji með 10 vinninga. Hinn kornungi Vignir var sá eini sem lagði Róbert, en fleiri kunnir kappar urðu að lúta í gras gegn unga snillingnum, sem er í stöð- ugri framför. Jólaskákmót á Kleppi Í dag fer fram á Kleppi jóla- skákmót geðdeilda, athvarfa og búsetukjarna, og er þetta einn af hápunktum ársins hjá mörgum skákáhugamönnum. Mótið á sér langa sögu, en þar keppa 3ja manna sveitir, og er einn starfs- maður leyfður í hverri sveit. Bókaforlagið Skrudda gefur verð- laun á mótið og heiðursgestur er Björn Blöndal. Það eru Skákfélag- ið Hrókurinn, Vinaskákfélagið og Víkingaklúbburinn sem standa að þessu skemmtilega móti. Í Bridgefélagi Reykjavíkur er nýlokið sveitakeppni sem kennd var við veitinga-húsið Vegamót. Sveit Lögfræðistofu Íslands vann sigur í þeirri keppni næsta örugglega, en hún var tveggja kvölda. Spil- aðir voru þrír 10 spila leikir á kvöldi. Loka- staða 5 efstu sveita varð þannig: 1. Lögfræðistofa Íslands 85,42 2. Gunnar Björn 77,66 3. Grant Thornton 77,16 4. Garðs Apótek 69,12 5. VÍS 68,76 Í sveit Lögfræðistofunnar spiluðu Sigur- björn Haraldsson, Aðalsteinn Jörgensen, Bjarni Einarsson og Sverrir Ármannsson. Aðalsteinn og Bjarni voru í 7. sæti í bötler- útreikningi para með 1,23 impa í plús í spili að meðaltali í 6 leikjum. Karl Sigurhjartar- son hafnaði í efsta sæti í bötlerútreikningi með 2,13 impa að meðaltali í 3 leikjum. Ragnar Hermannsson og Guðmundur Snorrason voru í öðru sæti með 1,58 impa að meðaltali í plús eftir 6 spilaða leiki. Spil 28 í þriðja leik keppninnar er áhuga- vert. NS eiga þar 6 tígla á aðeins 22 punkta samlegu. Að vonum voru það ekki margir sem náðu þeim samningi, eða aðeins 2 pör af 16. Vestur var gjafari og NS á hættu: Algengasti samningurinn í NS var 3 grönd. Fjórir fóru niður eftir hjartaútspil varnar- innar en tveir fengu að standa spilið eftir lauf út. Aðalsteinn Jörgensen og Bjarni Einarsson náðu ágætis árangri í spilinu, spiluð 5 tígla doblaða með yfirslag og þáðu 950 stig fyrir. Þeir þurftu samt að tapa við uppgjörið, því samningurinn var 6 tíglar ódoblaðir á hinu borðinu – 1370 stig. Níu impar tapaðir. En sveit Lögfræðistofunnar mátti við þess konar áföllum, því hún var með tæplega 8 stiga for- ystu á annað sætið við lok keppninnar. Dömukvöld BR Þann 13. desember (föstudagskvöld) var spilað Dömukvöld hjá Bridgefélagi Reykja- víkur sem kennt var við Borgarleikhúsið sem gaf miða á sýninguna Hamlet fyrir fyrsta sætið. Þátttaka var með ágætum og mættu 23 pör til leiks. Þær stöllur Guðný Guðjónsdóttir og Arngunnur Jónsdóttir unnu til þessa skemmtilega vinnings. Í öðru sæti urðu Halldóra Magnúsdóttir og Birna Stefánsdóttir. Lokastaða 5 efstu para varð þannig: 1. Arngunnur Jónsdóttir – Guðný Guðjónsdóttir 63,9% 2. Halldóra Magnúsdóttir – Birna Stefnisdóttir 63,6% 3. Sigríður Friðriksdóttir – Sigþrúður Blöndal 59,3% 4. Erla Sigurjónsdóttir – Ólöf Ólafsdóttir 56,4% 5. Harpa Fold Ingólfsdóttir – Svala K. Pálsdóttir 56,3% Í lok kvöldsins flutti leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrirlestur um leikhúsið og starfsemina, svaraði spurningum úr sal og veitti verðlaun. Minningarmót Ásmundar og Símonar Minningarmót Ásmundar Pálssonar og Sím- onar Símonarsonar verður haldið mánudag- inn 30. desember og hefst spilamennska stundvíslega klukkan 17. Spilað verður í hús- næði Bridgesambands Íslands Síðumúla 37 og er keppnisgjald kr 3.500 á mann. Spilað verður Monrad Barometer – 44 spil. Vegleg verðlaun verða veitt ásamt flugeldum. Skráning hjá: Bergi – bergur.reynisson@ gmail.com eða í síma 844-5322. Guðmundi – g.snorrason77@gmail.com eða í síma 861-9188. Dennu – gormur53@gmail.com eða í síma 864-2112.  Sveitakeppni vegamóta Lögfræðistofan er vön sigri Harðir pakkar Opið 11-22 | Þorláksmessa 11-23 | Aðfangadagur 11-13 Fim-fös 10-18 | Lau 10-22 | Sun 11-16 Þorláksmessa 10-21 | Aðfangadagur 10-12 Skullcandy Navigator Nokkrir litir Verð: 16.990.- iHome hátalarar Nokkrir litir / þráðlaus Verð: 9.990.- Metsölubók Epli.is Verð: 4.490.- Apple TV iPad mini Verð frá: 54.990.- Jólatilboð: Verð: 17.990.- Fullt verð: 22.990.- ♠ K103 ♥ Á954 ♦ 1095 ♣ Á97 ♠ ÁG96 ♥ - ♦ KDG8763 ♣ 108 ♠ 87 ♥ K10632 ♦ ÁKG10864 ♣ 42 ♠ D542 ♥ DG87 ♦ Á ♣ DG64 N S V A Sveit Lögfræðistofunnar sem vann sveitakeppni Vegamóta B.R. með yfirburðum. Sitjandi eru Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson og standandi Bjarni H. Einarsson og Sigurbjörn Haraldsson. Mynd Ísak Örn Sigurðsson Vignir Vatnar Stefánsson. Í mikilli framför. Skákljónið gjörþekkir bragðið af gullinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.