Fréttatíminn - 20.12.2013, Page 114
Bókaútgáfan Opna - Skipholti 50b - 105 Reykjavík - sími 578 9080 - www.opna.is
Fjársjóðurinn
hans Árna
EFI Mbl.
„Við hönnun og frágang bókarinnar hefur verið haft
að leiðarljósi að hafa hana sem fallegasta og gleðja
þannig lesandann með því að færa honum þennan
fyrirmyndarprentgrip.“
EFI Mbl.
„Upplýsandi, vegleg og fallega
hönnuð sýnisbók.“
„Lengi er hægt að rýna í þessar síður og dást að
þeim ...“
114 bækur Helgin 20.-22. desember 2013
Þröstur Jóhannesson tveggJa heima sýn
Þ röstur Jóhannesson ólst upp í Keflavík en býr nú á Ísafirði þangað sem ástin dró hann fyrir margt
löngu. Hann hefur í tvo áratugi verið með
hugmynd að barnabók í kollinum og hefur
loks látið verða af því að koma Sögunni af
Jóa á prent.
Jói er ellefu ára og býr við mikla
drykkju föður síns. Ástandið á heimilinu
flýr hann í ævintýraheim þar sem tveir
reffilegir sjóræningjar eru honum innan
handar.
„Sagan hefur búið dálítið lengi með mér
og hugmyndin er alveg orðin tuttugu ára
gömul,“ segir Þröstur sem hefur löngum
spunnið sögur fyrir syni sína fjóra og saga
Jóa er sprottin upp úr þeim sögustundum.
„Elsti sonur minn hefur orðið illa úti því
að hann er búinn að heyra svo margar út-
gáfur. Hann er orðinn 21 árs og er loksins
að fá söguna í endanlegri útgáfu núna.
Ég er búinn að fara svolítið illa með hann
sérstaklega.“ Þröstur tók sig síðan til fyrir
tveimur árum eða svo og byrjaði að vinna
í því að reka endahnútinn á söguna.
„Þetta er tveggja heima saga og hug-
myndin hjá mér var alltaf að reyna að
blanda raunveruleikanum, eins köldum
og hann frekast getur orðið, saman við
fantasíuna og leika mér svolítið með
þessar andstæður.
Ég vildi hafa söguna mjög raunsæja en
svo er hún líka falleg fantasía sem endar
vel en ég er ekkert að skafa af lýsingunum
á því hvernig er fyrir ellefu ára gamlan
dreng að búa á alkóhólísku heimili.“
Jói flýr drykkjuna inn í draumaheima.
„Hann er í raun og veru að reyna að
komast undan áhrifum alkóhólismans en
svo fléttast þessir heimar saman. Hann á
sjóræningjabrúðu sem hann horfir á og
fer á fljúgandi sjóræningjaskipi og notar
tvær persónur, sem hann fær reyndar frá
karli föður sínum sem er alkóhólistinn í
sögunni, sjóræningjana Hafliða skipstjóra
tvö nef og Sigurð fót. Jói er í raun og veru
í þessum heimi að reyna að bjarga karl-
inum á táknrænan hátt og nýtur liðsinnis
sjóræningjanna við það.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Með sjóræningjum á
flótta undan alkóhólisma
Þröstur Jóhannesson hefur lengi gengið með söguna um Jóa í kollinum.
Ég vildi
hafa sög-
una mjög
raunsæja
en svo
er hún
líka falleg
fantasía.
Þröstur Jóhannesson þreytti frumraun sína sem rithöfundur í haust með barnabókinni Sagan
af Jóa. Sagan gerist á mörkum tveggja heima, annars vegar í bláköldum raunveruleikanum
og í fantasíuheimi þangað sem Jói litli flýr drykkju föður síns, með hjálp tveggja sjóræningja
á fljúgandi skipi.
Barnabókahöfundurinn Hug-
inn Þór Grétarsson hlýtur að
teljast ofvirkur þegar kemur að
elju í útgáfu barnabóka en hann
hefur gefið út 30 bækur á fimm
árum. Hann rekur forlagið Óð-
insauga sem hefur einbeitt sér
að útgáfu barnabóka þótt hann
sé að færa sig yfir á fleiri svið.
Huginn Þór skrifar drjúgan
hluta útgáfubóka sinna sjálfur
og á þessu ári eru komnar út
sex bækur efir hann, en auk
þess gefur hann út verk ann-
arra höfunda og þýðingar.
Meðal bókanna sem komu
út í haust eru Fiðrildavængir,
saga í þjóðlegum búningi, og
ævintýrið um Gilitrutt þar sem
Huginn Þór endursegir gömlu
þjóðsöguna og færir málfarið
nær samtímanum. Í fyrra gaf
hann út Búkollu en sá þá ekki
ástæðu til að eiga við málfarið.
„Textinn rann bara ekki eins
vel í Gilitrutt og ég þurfti að
endurskrifa meira þangað til
ég varð sáttur,“ segir Huginn
Þór. „En útkoman ætti að henta
börnum vel.“
Ofvirki útgefandinn
Huginn Þór Grétarsson er óstöðvandi
í útgáfu barnabóka og gaf út sex slíkar
eftir sjálfan sig í ár.