Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 22
Vikan í tölum American Express Valid Thru Member Since American Express Valid Thru Member Since Kynntu þér kostina á www.americanexpress.is F ÍT O N / S ÍA Icelandair American Express® færir þér alltaf Vildarpunkta þegar þú verslar, líka erlendis American Express er skrásett vörumerki American Express. er útgefandi American Express® samkvæmt leyfi frá American Express www.mba.is Kynntu þér MBA-nám við Háskóla Íslands. Kynningarfundur og létt hádegishressing 24. apríl kl. 12-13 í stofu 101 á Háskólatorgi Skoraðu á þig og taktu skrefið Guðlaug Pálsdóttir Lyfjafræðingur og eigandi Urðarapóteks „MBA námið hvetur nemendur til frumkvöðlahugsunar og nýsköpunar“ Ólöf Guðný Valdimarsdóttir Saman getum við knúið fram afdráttarlaust uppgjör við hrunið 27.023 manns búa nú í Hafnarfirði, nítján sinnum fleiri en þegar Hafnarfjörður fékk kaup- staðarréttindi árið 1908. 8 ár eru síðan Björgvin Guðmundsson, ritstjóri Viðskipta- blaðsins, ákvað að vera viðstaddur útför Margaret Thatcher. Hann stóð við stóru orðin við fjórða mann í vikunni. 300 milljónir króna var beinn bókfærður kostnaður við við- ræður Íslands við Evrópusambandið á árunum 2010 til 2012. 52 bankaútibúum hefur verið lokað á Íslandi frá árinu 2007. Þau er nú 102. 188.000 krónur fá karlkyns- stjórnendur að meðaltali umfram kvenkyns koll- ega sína í laun á mánuði samkvæmt launakönnun Hag- stofunnar. 60 milljarðar króna var útflutningsverðmæti makrílafurða frá Íslandi undanfarin þrjú ár. Við viljum ekki vita af því hversu hryllilegur atburðir eiga sér stað í næsta nágrenni við okkur. Sorgin er sjaldan meiri en þegar barn deyr á voveiflegan hátt Dauði annarra A llir deyja einhvern tímann,“ er stundum sagt, svona eins og til að gera dauðann léttbærari. Það er jú alveg rétt að allir deyja. Hvernig við deyjum er hins vegar misjafnt. Afar misjafnt. Utan úr heimi lesum við fréttir af því að foreldrar hafi orðið barninu sínu að bana og þessum fréttum fylgja jafnvel hryllilegar lýsingar á því hvernig börnin deyja, hvernig þau voru pyntuð af geðsjúkum foreldr- um sem vita hvorki í þennan heim né annan. Foreldrum sem jafnvel höfðu svo gjörsamlega misst tengsl við raunveruleikann að þeir vissu ekki þá og þegar að þeir voru að drepa börnin sín. Þessar sögur heyrum við frá útlöndum. En við á Íslandi eigum okkar eigin sögur. Þetta eru sögur sem vegna smæðar samfélags okkar rata síður í fjölmiðla. Að hluta því við viljum ekki að harmur bágstaddrar fjölskyldu í næsta póstnúmeri sé gerður að söluvöru. Að hluta til því við viljum ekki vita af því hversu hryllilegir atburðir eiga sér stað í næsta nágrenni við okkur. Þessi smæð var mér einmitt hugleikin hér um árið þegar ég kynntist ungum dreng sem hafði þurft að horfa upp á systkini sitt drepið af foreldri þeirra. Við kynntumst aldrei vel en alltaf fékk ég sting í hjartað og sting í magann þegar ég hitti hann. Mig langaði alltaf að segja eitthvað rétt og upp- byggjandi en endaði oft einfaldlega á því að brosa klaufalega og tala um einskis nýta hluti. Um tíma bjuggum við í sama hverfi og einn daginn rakst ég á nafnið hans, gælu- nafn, skrifað stórum stöfum í blauta gang- stéttarsteypu. Ég vissi aldrei hvort hann skrifaði þetta eða einfaldlega nafni hans. Í huga mínum var það samt hann sem ákvað að skilja þarna eftir mark sitt, móta steyp- una áður en hún þornaði og gera stéttina sem við göngum á að sínum minnisvarða. Nú er búið að steypa yfir nafnið hans og mörg ár eru síðan ég sá hann síðast. Saga hans fjölskyldu er jafn einstök og hún er sorgleg. En þó eru þær fleiri á litla Íslandi þó við viljum loka augunum fyrir því. Þær tölur sem birtar eru í frétt minni hér framar í blaðinu um börn sem deyja vegna illrar meðferðar sýna það svart á hvítu. Að jafnaði deyr barn annað hvert ár á Íslandi vegna ofbeldis og vanrækslu, barn undir tíu ára aldri. Sem betur fer er það í undantekningartil- fellum sem það gengur svo langt að börnin bókstaflega taka sinn síðasta andardrátt eftir illa meðferð sinna nánustu. Oftar er það sem börnin missa lífslöngunina – lífs- neistann. Oft er það sem við vitum af þess- um börnum, við þekkjum þau og sjáum þau úti á götu. Og oft hugsum við með okkur að þetta sé ekki okkar mál, lítum í hina áttina og reynum að sannfæra okkur um að við séum jú gott fólk. En þó allir deyi einhvern tímann þá getum við gert okkar til að líf annarra verði aðeins bærilegra og kannski aðeins lengra. Erla Hlynsdóttir erla@ fret ta timinn.is sjónArhóll 22 fréttir Helgin 19.-21. apríl 2013 vikunnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.