Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 36
VERKSÝN
Námskeið í undirbúningi
viðhaldsframkvæmda fyrir húsfélög
Verksýn ehf. býður forsvarsmönnum húsfélaga til námskeiðs í
undirbúningi viðhaldsframkvæmda. Á námskeiðinu, sem tekur
eina kvöldstund, verður farið yr ferli viðhaldsframkvæmda
á ölbýlishúsum. Námskeið verða haldin á þriðjudagskvöldum
í mars og apríl, í húsakynnum Verksýnar ehf. að Síðumúla 1 í
Reykjavík. Námskeiðin eru opin öllum stjórnarmönnum
húsfélaga, þeim og húsfélögunum að kostnaðarlausu.
Áhugasamir geta skráð sig á námskeið með tölvupósti á
netfangið verksyn@verksyn.is eða í síma 517-6300.
Verksýn ehf. er ráðgjafarfyrirtæki sem
sérhær sig í viðhaldi og endurnýjun
fasteigna. Fyrirtækið hefur sinnt ölda
verkefna fyrir einstaklinga, fyrirtæki og
húsfélög. Hjá Verksýn starfa sérfræðingar
með áratuga reynslu í mannvirkjagerð
og viðhaldi fasteigna.
Verksýn ehf l Síðumúla 1 l 108 Reykjavík l www.verksyn.is
Þórður Björn Sigurðsson
Saman getum við
tryggt þjóðinni nýja
stjórnarskrá og
lýðræðisumbætur
É
g hef komist þangað
sem ég er á dugnaði.
Hæfileikar einir og sér
koma þér voða stutt,
maður verður að hafa
hausinn í lagi. Ég hef séð marga
leikmenn með miklu meiri hæfi-
leika en ég sem hafa ekki komist
lengra en að spila á Íslandi. Þetta
snýst um að vera skynsamur og
samviskusamur, æfa vel og æfa
rétt. Ég stefni hátt og er með gott
plan í hausnum um það hvernig ég
vil að minn ferill fari. Það er undir
mér komið að taka réttar ákvarð-
anir og láta það ganga upp,“ segir
Alfreð Finnbogason, framherji hjá
hollenska úrvalsdeildarliðinu Hee-
renveen.
Öll vikan snýst um
undirbúning fyrir leikinn
Nafn Alfreðs er á hvers manns
vörum eftir frábæra frammistöðu
með Heerenveen í vetur. Alfreð
var keyptur til liðsins síðasta haust
og hefur slegið í gegn á sínu fyrsta
tímabili. Hann hefur skorað 23
mörk í 27 deildarleikjum. Um síð-
ustu helgi skoraði hann tvívegis og
jafnaði þar með 33 ára gamalt met
Péturs Péturssonar en enginn Ís-
lendingur hefur skorað fleiri deild-
armörk á einu tímabili. Alfreð er
sem stendur í þrettánda sæti í bar-
áttunni um Gullskó Evrópu. Áður
en Alfreð flutti sig yfir til Hollands
hafði hann raðað inn mörkum hjá
sænska félaginu Helsingborg svo
síðasta ár hefur sannarlega verið
gjöfult hjá þessum 24 ára pilti.
Það liggur vel á Alfreð þegar
Fréttatíminn ræðir við hann
síðdegis á mánudegi. Hann situr
úti á svölum í sólinni og slappar af
eftir að dagskrá dagsins er tæmd.
Hann hlær að athugasemdum
blaðamanns um að mörkin tvö sem
hann skoraði um helgina hafi kom-
ið honum yfir erfitt tímabil, þurrk
í markaskorun. „Ef þú kallar einn
leik þurrk. Sumir myndu kalla það
þurrk, ég er ekki ósammála því,“
segir hann léttur í bragði.
Alfreð vaknaði klukkan hálf
níu þennan mánudagsmorgun og
borðaði morgunmat heima hjá sér
áður en hann var mættur upp á völl
Heerenveen fyrir klukkan tíu. Þá
var stuttur fundur og afslöppun
fyrir æfingu klukkan ellefu. Æf-
ingin stóð í um einn og hálfan tíma
og að henni lokinni borðaði allt
liðið saman um eittleytið. „Eftir
það var ég laus allra mála. Svona er
þetta oftast þó stundum séu tvær
æfingar,“ segir Alfreð. „Eftir þetta
kem ég oftast heim og legg mig í
klukkutíma. Ef ég er með gesti í
heimsókn förum við kannski að
skoða eitthvað en annars fer ég
bara í golf eða slappa af heima.
Fólk ímyndar sér kannski að þetta
líf sé öðruvísi en þetta er voða
rólegt. Ef maður vill ná árangri
verður maður að slaka á utan æf-
inga og leikja. Öll vikan snýst um
þessar 90 mínútur um helgar.“
Alltaf með augun
á næsta markmiði
Alfreð lætur sér ekki æfingarnar
Markavélin í Hollandi
Alfreð Finnbogason hefur skorað 23 mörk í 27 deildarleikjum
með Heerenveen í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta og er
meðal stigahæstu manna í keppninni um Gullskó Evrópu. Hann
hefur fjóra leiki til að bæta 33 ára gamalt markamet Péturs
Péturssonar og verða þar með skæðasti framherji Íslands-
sögunnar. Hver er sagan á bak við velgengni þessa 24 ára
stráks úr Grindavík? Fréttatíminn ræddi við einn eftirsóttasta
framherja Evrópu.
hjá Heerenveen duga. Aðspurður
segist hann oftast bæta kortéri eða
tuttugu mínútum við daglegu æf-
ingarnar til að æfa skot og tækni.
Ofan á það bætir hann lyftingaæf-
ingum 2-3 í viku sem hann skipu-
leggur með einkaþjálfara á Íslandi.
Alfreð segir að það hafi komið sér
á óvart hversu fáir leikmenn sem
hann hafi umgengist í atvinnu-
mennsku leggi á sig aukaæfingar
til að ná lengra í íþróttinni. „Þetta
hef ég alltaf gert, frá því í yngri
flokkunum. Mér finnst skrítið
þegar menn hafa fótbolta að at-
vinnu að þeir sinni henni ekki 110
prósent. Kannski stefna aðrir ekki
hærra en ég er alltaf kominn með
augun á næsta markmið, án þess
að fara fram úr mér.“
Þetta kannast Bryngeir Torfa-
son við. Bryngeir þjálfaði Alfreð
um fjögurra ára skeið hjá Fjölni og
Breiðabliki og kynntist vel hversu
hugfanginn hann var af fótbolta
og ákveðinn í að ná langt. „Hann
hefur þurft að hafa fyrir hlutunum
og hefur komist þetta langt á eigin
forsendum,“ segir Bryngeir.
Mamma Alfreðs, Sesselja Pét-
ursdóttir, segir að Alfreð hafi verið
indæll drengur. Hún grínast stund-
um með það að hún hafi þurft að
hafa jafn mikið fyrir honum og
systrum hans þremur. Í dag lítur
hún ærslalætin í æsku jákvæðari
augum, enda hafi þau verið hluti af
því að móta skapgerð hans. „Hann
gafst aldrei upp og gat gert mig
rosalega þreytta. Frá því hann var
pínulítill hætti hann aldrei, hann
þurfti alltaf að vera í vinningsliði.
Hann var ótrúlega þrjóskur,“ segir
Sesselja.
Óttaðist það versta á bekknum
í Belgíu
Alfreð er svo ákveðinn í að ná
árangri að hann er stöðugt að setja
sér ný markmið. Fyrir hvert ár eða
tímabil skrifar hann niður það sem
hann ætlar sér að ná fram og hvað
hann þarf að gera til að ná þessum
markmiðum.
„Ég byrjaði á þessu 2008 og
þetta hefur gengið hrikalega vel.
Ég er oftast með fjögur markmið
hverju sinni, stundum skamm-
tímamarkmið þegar ég veit ekki
hvernig hlutirnir munu þróast.
Með þessu veit ég hvert ég stefni.
Það er þægilegt fyrir sóknarmann
eins og mig að setja sér markmið
um mörk og stoðsendingar en ég
set mér líka markmið um annað
sem ég vil bæta í leik mínum.“
Þú hlýtur að vera búinn að ná
einhverjum af þínum markmiðum í
vetur, ekki satt?
„Jújú, fyrsta markmiðið var að
skora fimmtán mörk og ég náði
því í sautján leikjum. Eftir áramót
setti ég mér ný markmið um að
spila betur og öðruvísi. Ég sá að
mörkin voru að koma og þá fór ég
að einbeita mér að því hvernig ég
spila. Núna er ég miklu stöðugri
leikmaður en áður. Í Helsingborg
átti ég bæði mjög góða leiki og
mjög slæma leiki. Það var oft mik-
ill munur á. Núna er frammistaðan
Alfreð Finnbogason þroskaðist seint og fór seinna út í atvinnumennsku en flestir félagar hans í landsliðinu. Það hefur ekki
komið að sök og hann verður með eftirsóttustu framherjum Evrópu þegar leikmannamarkaðurinn opnar í sumar. Ljósmynd/Hari
36 viðtal Helgin 19.-21. apríl 2013