Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 38
Við skulum sýna þessum
drullupollum hver ræður
Börnin eru alvöru útivistarfólk og þurfa fatnað eftir því.
Pollagallarnir frá 66°NORÐUR hafa í gegnum árin gengið í erfðir
enda eru þeir vandaðir, endingargóðir og byggja á reynslu okkar
af gerð sjófatnaðar síðan 1926. Það dugar ekkert minna.
Minnir á Ian Rush og van Basten
Bryngeir Torfason þjálfari Alfreð Finn-
bogason þegar hann var unglingur.
Ljósmynd/Hari
„Ég byrjaði að þjálfa hann ellefu
eða tólf ára gamlan. Þá var strax
komið í ljós hversu hæfileikaríkur
hann er. Hann tók á móti bolt-
anum og vissi alltaf hvert hann var
að fara að senda hann. Hann hafði
rosalega gott auga,“ segir Bryn-
geir Torfason knattspyrnuþjálfari.
Bryngeir þjálfaði Alfreð Finnboga-
son hjá Fjölni í Grafarvogi og síðar
hjá Breiðabliki.
Í Grafarvoginum spilaði Al-
freð með strákum eins og Aroni
Jóhannssyni og Guðlaugi Victori
Pálssyni sem báðir leika í Hollandi
í dag eins og Alfreð. „Ég man eftir
að eitt árið var kennaraverkfall.
Ég var að vinna vaktavinnu og gat
því þjálfað þá bæði á morgnana og
eftir hádegið. Alfreð kom á allar
æfingar og kláraði allt. Hann setti
sér rosalega háleit markmið og
við þjálfararnir þurftum að vera
með allt á tæru. Hann er náttúr-
lega rosalega vel gefinn,“ segir
Bryngeir.
Bryngeir segir að það hafi
reynst Alfreð erfitt að komast ekki
í unglingalandsliðin en hann hafi
sýnt karakter og haldið áfram að
reyna að bæta sig. „Hann hafði
alla þessa hæfileika en þótti ekki
nógu stór og sterkur. Svo vildu
einhverjir meina að hann væri
ekki nógu fljótur en það var ekki
rétt. Ég mældi hann, bæði á 10, 15
og 60 metrum og hann var alveg
nógu fljótur.“
Bryngeir segir að Alfreð minni
sig á tvo gamalkunna framherja:
„Það er rosalegur Ian Rush í
honum. Og van Basten. Ef þú
myndir skoða van Basten þegar
hann var hjá Milan þá sæirðu hvað
þeir eru líkir,“ segir Bryngeir.
Svo skemmtilega vill til að þjálfari
Alfreðs hjá Heerenveen heitir
einmitt Marco van Basten.
Alfreð vill ekki mikið tala um
launin sín og hvort hann hafi
efnast á fótboltanum. Hann segist
einfaldlega hafa það „mjög gott“.
Alfreð segir að Heerenveen sé 6.
- 7. stærsti klúbburinn í Hollandi
og það sé mikill munur á launum
hjá félaginu og því stærsta. „Það
er mikill munur á því hvernig Ajax
borgar og hvað hin liðin borga.“
Frammistaða Alfreðs í vetur
hefur verið með slíkum ágætum
að nær öruggt má telja að hann
næli sér í veglega launahækkun í
sumar; ef hann verður ekki seldur
til stærra liðs hlýtur Heerenveen
að bjóða honum betri samning
til að festa hann í sessi og hækka
verðmiðann á honum. Sumarið
verður því mikilvægt upp á fram-
38 viðtal Helgin 19.-21. apríl 2013