Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 19.04.2013, Blaðsíða 30
Krumma 112 Reykjavík 587-8700 www.krumma.is Öryggi - Gæði - Leikgildi LikeaBike 34.950 kr. Sandkassasett 1.390 kr. Winter þríhjól 19.990 kr. Berg Grafa 24.300 kr. Berg trampolín opinberlega um óheiðarleika í viðskiptum en það hefur hann ávallt þvertekið fyrir. Sigur í orrustunni Hart var sótt að Bjarna í aðdraganda landsfundar 2011 þegar Hanna Birna bauð sig fram gegn sitjandi for- manni, sem er nokkuð sem aðeins einu sinni hefur áður gerst í sögu flokksins, þegar Davíð Oddsson felldi Þorstein Pálsson úr formannsstóli árið 1991. Bjarni hafði betur í einvíginu við Hönnu Birnu en umræða úr herbúðum Hönnu Birnu, um að forysta hennar væri farsælli fyrir flokkinn, hefur verið æ háværari undan- farnar vikur, og magnaðist eftir því sem fylgi flokks- ins minnkaði sífellt meir í skoðanakönnunum og náði hámarki með birtingu skoðanakönnunar Viðskipta- blaðsins fyrir viku. Og nú hefur honum tekist að sigra í enn einni orr- ustunni. „Ég hef áttað mig á því undanfarið að kannski hef ég, ómeðvitað, verið kominn í of mikla vörn, meiri vörn en ég áttaði mig á,“ segir Bjarni. „Það skiptir miklu máli að fólk finni að maður sé að meina það sem maður segir og það getur verið erfitt að koma því til skila úr varnarstöðu. Og af þeim sökum hefur mér ekki tekist nægilega vel að koma málstað flokksins á fram- færi með sannfærandi hætti líkt og skoðanakannanir sýndu. Því við höfum allt sem þarf, erum með öfluga framboðslista og sterka stefnu en kannski hefur of mikið af okkar krafti beinst að öðrum málum í of langan tíma,“ segir hann. Því orrustan, sem nú er yfirstaðin, hófst ekki með birtingu skoðanakönnunar Viðskiptablaðsins sem sýndi að mun fleiri myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef Hanna Birna leiddi hann. Hún hafði þá þegar staðið yfir um nokkra hríð. Líkt og fram hefur komið var Frið- rik Friðriksson, formaður kosningastjórnar Suðvestur- kjördæmis, einn þeirra sem hvatti Bjarna, skriflega og munnlega, til að láta af formennsku. Eiginkona hans, sjónvarpskonan Elín Hirst, sem er í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kjördæmi Bjarna, sendi honum einnig bréf í síðustu viku þar sem hún hvatti hann til að segja af sér, samkvæmt heimildum Fréttatímans. Fáeinum dögum síðar stóð hún við hlið Bjarna í Kringl- unni og bakaði vöfflur. Viðbrögð Bjarna við bréfum þeirra hjóna koma þeim, sem þekkja hann vel, ekki á óvart, því hann sé í eðli sínu maður sátta og málamiðlana. Öðrum finnst það veikleikamerki að hann hafi ekki brugðist við af þeirri hörku sem Davíð hefði að öllum líkindum gert, og tekið Elínu út af sakramentinu, eins og það var orðað. „Maður á alltaf valkosti,“ segir Bjarni þegar ég spyr hann út í þetta. „Að reiðast fólki og vera jafnvel lang- rækinn og láta skapið hlaupa með sig eða einfaldlega að gera bara eitthvað þveröfugt. Það er hægt að skoða heiminn út frá hugmyndafræði Macchiavelli, sem reyndar hefur kennt okkur margt um mannlegt eðli, og líta á lífið sem eina samfellda orrustu – eða horfa meira inn á við og spyrja sig hvernig maður maður vill vera og hvaða máli það skipti þegar upp er staðið þótt einhverjum finnist eitthvað um þig og segi eitthvað við þig. Eru þau orð eða þær hugsanir eitthvað meira virði, vega þau þyngra en nákvæmlega það vægi sem þú ákveður að gefa þeim orðum sjálfur?“ spyr hann. „Mér finnst skipta máli að fara svona í gegnum lífið. Ekki leyfa fólki að stela frá mér orku án nokkurs tilgangs. Ég reyni að láta ekki hluti trufla mig sem skipta á endanum ekki máli,“ segir Bjarni. Sakbendingar og ásakanir Hann heldur áfram að lýsa heimspeki sinni og notar hugtök á borð við sanngirni, heiðar- leika, ábyrgð, vináttu, ást og traust. Allt þetta eru orð sem seint væru notuð til þess að lýsa nútímapólitíkus í því ofsafengna um- hverfi átakastjórnmála sem við eigum að venjast. Og þetta eru alls ekki hugtök sem ég myndi velja til að lýsa þeim Bjarna sem birtist í fjölmiðl- um og í ræðustól Alþingis. Hvers vegna hefur sá mað- ur sem hér talar ekki verið í pontu Alþingis undan- farin fjögur ár? „Síðast- liðin fjögur ár hafa verið skrýtinn tími,“ svarar Bjarni. „Ekkert nema sakbendingar og ásakanir þvert á milli flokka. Auðvitað gerist það að manni verður algjörlega misboðið. Við höfum verið stödd í einhverju ástandi sem er vonandi smám saman að breytast því ég finn að fólk vill að það breytist,“ segir hann. Ég verð hugsi. Hvort var þetta úthugsað plott hjá Bjarna og félögum, eins og sumir hafa haldið fram, að formaðurinn tæki niður grímuna fyrir framan alþjóð, spilaði út einlæg- nitrompinu og höfðaði til meðvirknitaugar þjóðarinnar með þessu sjónvarpsviðtali og næði þannig vonandi viðspyrnu við botninn – eða þá að hann var í raun og veru í fyrsta sinn opinberlega ekki að leika það hlut- verk sem hann telur sig þurfa að leika sem formaður stærsta stjórnmálaflokks landsins? Ég er ekki viss. Eitt sem viðtalið gerði, var að gera Bjarna mann- legri. Þrátt fyrir að hafa útlitið með sér hefur hann hins vegar ekki þótt hafa nægilega persónutöfra til þess að geta orðið sá stjórnmálaleiðtogi sem vonast var eftir. Það er dálítið eins og hann hafi ekki öðlast lífsreynslu – að hann hafi aldrei þurft að hafa fyrir neinu í lífinu, að hann hafi aldrei orðið fyrir áfalli sem hafi mótað hans karakter. Hann hefur einhvern veginn alltaf farið beinu brautina. Hann útskrifaðist nítján ára úr MR og lauk lögfræðiprófi í Háskóla Íslands áður en hann fór til Þýskalands og lærði þýsku og meiri lögfræði og fór því næst til Bandaríkjanna og náði sér í aðra meist- aragráðu í lögum í háskólanum á Miami. Hann lauk prófi í verðbréfamiðlun og vann hjá sýslumanninum í Keflavík og sem lögfræðingur hjá Eimskip áður en hann gerðist hluthafi í lögmannsstofunni Lex þangað til hann var kjörinn á þing árið 2003, 33 ára að aldri. Hann kvæntist æskuástinni, Þóru Margréti Baldvins- dóttur, og á með henni fjögur börn á aldrinum tveggja til tuttugu og tveggja ára. Þótt undarlegt megi hljóma er þetta einmitt ef til vill hans mesti akkilesarhæll. Það eru ekki nógu margir sem geta samsamað sig með honum. Hann verður seint alþýðuhetjan Steingrímur eða leiðtoginn Davíð sem allir elska að hata. Hann skortir þroska Geirs og bíræfni Jóns Baldvins. Trúr sannfæringu sinni Sjálfum er honum illa við að vera borinn saman við fyrri formenn. „Það gagnast mér alltaf best að vera trúr sjálfum mér og sannfæringu minni. Ég reyni að setja mig ekki í einhverjar stellingar og gæti þess að láta ekki einhver óvænt atvik eða tímabundið ástand hagga sannfæringu minni,“ útskýrir hann. Hann vísar því alfarið á bug að starfa í skugga Davíðs, líkt og haldið hefur verið á lofti. Bjarni fékk að finna fyrir reiðinni sem beindist að Davíð í kjölfar hrunsins þegar hann hélt uppi vörnum fyrir hann á fyrsta landsfundi flokksins eftir hrun og sagði: „Það hefur ítrekað verið vegið að Davíð Oddssyni, fyrrver- andi formanni okkar, og farsælasta forsætisráðherra seinni tíma. Eitt fyrsta verk minnihlutastjórnarinnar vorið 2009 var að hrekja hann úr stóli seðlabanka- stjóra undir þeim ótrúlegu formerkjum að ráðast þyrfti í hreinsanir í þjóðfélaginu.“ Því eitt af því sem Bjarni á ólært er að lesa betur í þjóðarsálina, sem á þessum tíma var mjög andsnúin Davíð – en það er ef til vill vegna þess að Bjarni vill fylgja eigin sann- færingu. Honum leyfist það hins vegar ekki alltaf líkt og berlega kom í ljós í IceSave málinu svokallaða þar sem Bjarni studdi samning ríkisstjórnarinnar. Í leiðara Morgunblaðsins næsta dag jós fyrrverandi formaður og ritstjóri, Davíð Oddsson, úr skálum reiði sinnar yfir afstöðu Bjarna og kallaði hann meðal annars „vikapilt Steingríms J“ eins og frægt er orði og sagði sjálfstæðis- menn “agndofa”. „Ég er ekki með Davíð á öxlinni,“ segir Bjarni ákveðinn þegar ég spyr hvern- ig það sé að hafa Davíð stjórnandi í gegnum Reykjavíkurbréf Morgun- blaðsins, Staksteina og leiðara. „Þarna erum við komin aftur að því sem við vorum að ræða áðan. Það sem stýrir mínum hugsunum og athöfnum er eitt- hvað sem ég á endanum ræð. Það sem er sagt er bara sagt – ég ræð hvort ég tek það til mín og læt það stjórna mér eða ekki. Ég er fyrst og fremst trúr þeirri sannfæringu og sem dæmi um það þá er nú ekki fullkominn samhljómur með skoðunum okkar. Það sem mér þykir vænst um þegar þú nefnir Davíð við mig er það að hafa fengið að kynn- ast honum og sú vinátta sem við eigum. Ég ber alls ekki kala til Davíðs frekar en til nokk- urs annars manns,“ segir Bjarni. Bjarni hef- ur verið gagn- rýndur fyrir að hafa ekki Bjarni Benedikts- son „Ég hef áttað mig á því undanfarið að kannski hef ég, ómeðvitað, verið kominn í of mikla vörn, meiri vörn en ég áttaði mig á.” 30 viðtal Helgin 19.-21. apríl 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.